Ehemm.
Mín bíða 15 kör af Þorski í fyrramálið, annan í Hvítvoðungs-sunnu. Hann þarf að hausa, flaka, roðfletta og snirta. Vinna í fiski er GÖFUG! Ekki látum við hann úldna í körum, meðan við fögnum einhverri ömurlegri ævi söguhetju mest SELDU nobel mann-kerta sögunnar!
Góðar stundir!
Elska ykkur!
Heill þér, undirstöðuatvinnugrein íslenskar velmegunar. Álver verða hér einn góðan veðurdag eins og aflóga minkabú út um sérhvern fjörð en fiskurinn kemur og verður og hann þarf að flysja.
Sem minnir mig á það. Ég held ég eigi hér einn siginn þyrskling í skápnum sem þarf að fara að sjóða. Adjö.
Var einmitt að rölta um sjávarpláss út á landi fyrir stuttu, fiski ilmurinn vafði sig um nasirnar og gáfu manni vellíðan sem erfitt er að lýsa.
Þegar þú ert búinn að vinna allan fiskinn úr kerjunum prófaðu þá að leggjast í kör...hahahahahahahahahaahahahahahahahaha