Skoðanakönnun einhver var í frjettum áðan þar sem kom fram að auglýsingar tvær (30km og hægðu á þjer) Hafi haft mismunandi áhrif eftir aldri ökumanna.
Sem sagt, að auglýsingarnar höfðu mun meiri áhrif á unga ökumenn en þá sem eru komnir yfir 55 ára.
Sem er auðvitað eðlilegt. En svo kemur frjettin,
"Eingin getur útskýrt þennan mun". ?
Eru ungir ökumenn ekki einfaldlega áhrifagjarnari spyr jeg?
Og eru ökumenn sem komnir eru á efri ár ekki fyrir löngu búnir að átta sig á því að það borgar sig ekki að aka eins og fábjánar?
Eða gæti það verið að þetta þurfi að ransaka sjerstaklega?
Jeg segi ekki meir, nema það að svona vitleysa er öldungis að gera mig brjálaðan!
Ég ætla að bíða með að trúa þessari frétt fyrr en hún birtist á Lútnum. Falsmiðlunum er ekki treystandi.
Ungu fólki finnst líka meira sport að ljúga í skoðanakönnunum. Það er ekki neitt að marka neina skoðanakönnun nema úrtakið sé allt yfir 55 ára og helst með lygamæli líka til öryggis.
Fyrir nú utan það unga fólkið sem ekki tekur mark á svona er dáið úr bílslysum.
Margir sem komnir eru af þrítugsaldri hafa vissulega róast og fundið frið í umferðinni. En á hinn bóginn er til hópur eldri þverhausa sem finnst þeir vera kóngar, búnir að keyra í 40 ár, og láta engan segja sér neitt.
Ég trúi þessum niðurstöðum vel. Sjálfur er ég 62 ára gamall. Þegar ég minnist þessara auglýinga reiðist ég því hve ósmekklegar þær eru og gef í. Kröftuglega. Já... eða myndi sko gera það ef ég ætti bíl.