Þetta er bara ekki alveg að gera sig, það er öldungis augljóst.
Jeg skal nú reyna að vera ekki ljótkjafta, heldur passlega mjúkmæltur.
En elsku krúttin mín. Öll þjer Alter Egó og Blút þambandi Ákavítis sjúku Kóbalt negldu nýgræðingar, skriffinnar, heiðurgestir, fastagestir og hvað eina.
Orginal útlitið aftur!
Já. Hvert er álit ykkar hinna eldri (heldri) Gestapóa?
Hjer fyrr á öldum geystum við um fagur brúnar hlíðarnar og hlutirnir reglulega vel innrammaðir og skilvirkir. Reynt hefur verið að fegra þá fullkomnun óþolandi oft og að mínu mati til vansa landi voru. Til vansa!
Vinalegt vörumerki okkar er úthýst (að mestu) og himininn málaður hvítri slikju sem eingan gleður. Og vil jeg minna á þau algildu spakmæli sem í fullu gildi eru, að því sem virkar skal síður breytt.
Jeg treysti á ykkur. Látum yfirmennina kenna á því og gerum uppreysn! Látum þá blæða og lúta í gras með blöðrur á höndum, því þeir skulu gera bót!
Áramót!
Ég vil svara þessu með því að vísa í gamalt félaxrit frá mér: http://baggalutur.is/gestapo/profile.php?mode=viewprofile&u=344&n=2559 p>
Getið þið aldrei látið af fortíðarþránni? Gestapó má alveg breytast og þróast eins og það hefur ávalt gert rétt eins og við sjálf.