Hernaðar áættlun mín til næstu missera.
Mínir ágætu Gestapóar.
Nú er Hundi í essinu sínu, því að hann hefur gert leynilega áættlun til að lifa af næstu misserin.
Hunda veit ekkert um þetta, enda les hún ekki íslensku og hefur ekki list á að reyna það.
Eins og mínir tryggustu aðdáendur vita höfum við Hunda keypt okkur hundakofa ræfil einn hjer í Reykjavíkur rassgati.
Gert höfum við með okkur samkomulag um að borga helvítið jafnt til helminga.
Og getur Hunda skriðið þarna inn í Ágúst í það seinasta, svo hún er byrjuð að pakka niður sínu jukki og glingri í ljóta kassa.
Sjálfur fer Hundi á fjöll í sumar, á vergang. Hefur hann augastað á fleiri en einum stað langt langt í burtu frá fyrringunni í Reykjavíkur rassi. Og þangað skal haldið strax að loknu sumar flakki. Hunda hefur ekki hugmynd um þetta en verður að vonum glöð þegar hún kemst að þessu. Getur hún þá hýrst í kofa ræksninu ein með sína eigin hvolpa en Hundi að sjálf sögðu stendur við sinn hluta af afborgunum. En ekki hvað?
Þetta verður yndælt! Geri mjer ferð í fyrringuna einungis til að huga að elsta hvolpi mínum þar. Og í annari fyrringu á Akureyrar tetri er annar hvolpur vetri yngri. Þangað mun Hundi einnig gera sjer ferð, kanski jafn vel oftar en hingað til.
Og svo er yngsti hvolpur Hunda í Qaqortoq á Grænlandi. Þangað er stefnan að fara í haust. Sjáum til hvort Hundi komist heim að því loknu eða hvort hann hafi þar vetursetu fáist góð vinna þar. Til að borga reykningana þið vitið.
Annars finnur Hundi sjer stað á skerinu.
Ekkert er verra en að vera einn í heiminum, nema þá að vera einn í heiminum innan um fullt af fólki!
SKÁL!
Ég kannski kem með þér. En ég þarf þá pottþétt að koma til þín... ekki förum við á fjöll í Danmörku.
-
Himlebjerget? Passlegt fyrir gamla, feyta letingja eins og Dani og Færeyinga.
Mér finnst gaman á fjöllum! En þá er maður gestapólaus... hmm... hvernig fæ ég þetta til að virka...