Við erum aldrei alveg frjáls
Vefst um tunga tönn.
Tilfinningin sönn
grefst í fornri fönn.
Fjötra eigin bönn.
Hugans mikli múr
- martraðanna búr.
Ef ég væri ekki ílla-lyktandi hálfrotnað gamalmenni sem enginn vill hafa yfir sér þá myndi ég knúsa þig núna fyrir þetta.
Þetta er stórgott!
Snjallt smákvæði. Niðurlagið er geysisterkt, & varpar margslungnu ljósi á fyrrihlutann.
Lísfsins elur önn.
Lostans ýfir hrönn
ung sem ætihvönn.
Ilmandi og grönn.
Gerumst gróf og klúr.
Guðrún! Farðu úr!