Mér finnst gott að maula ís,
mikið fínt og gaman.
Mamma er sko í mussu úr flís,
mikið er það gaman.
Er annars að pæla í því hvort þetta „sko“ eigi kannski ekkert heima þarna. Það er náttúrulega danska.
Hversu oft þarf mylsnuskrifari að benda fjölmiðlamönnum á að sögnin „fokka“ beygist eins og sögnin „staura“? Það er: fokka - fokkaði - fokkað. Alveg eins og: staura - stauraði - staurað. Fokka beygist veikt. Það blasir við öllum rétthugsandi mönnum.
Þá er ekki minna ömurlegt að hlusta á tuð um að hinn eða þessi sé „fokkt“. Við erum vitaskuld „fokk-uð“.
Jæja. Ég hef ákveðið hverja ég mun styðja til setu á Stjórnlagaþingi.
Útlendingana.
Þolað gat breikið og bítboxið
ballett og annað tað
en djöfulsins andskotans dítoxið
– ég dreg mín mörk við það.