Mér finnst gott að maula ís,
mikið fínt og gaman.
Mamma er sko í mussu úr flís,
mikið er það gaman.
Er annars að pæla í því hvort þetta „sko“ eigi kannski ekkert heima þarna. Það er náttúrulega danska.
Ég vil bara beina þeim tilmælum til samninganefndar Íslendinga að reyna að kría út að minnsta kosti tylft skipaferða hingað frá Noregi á ári. Af fenginni reynslu eru sex einfaldlega ekki nóg.
Ef enn einn fjandans ekkisens kjólklæddi erkibjálfinn déskotast til að líkja efnahagsástandinu við sjómennsku eða veður skal ég svoleiðis elta hann uppi og troða öllu því sem troðið verður á bólakaf í jafnt bak- sem þverrifurnar á honum.
Leið á lífi Breiðný
liggur hás í ræsi.
Frægðar fall af stalli
– fokk hvat þetta sökkar.