— KOLFINNA —
— LESBÓK —
12/3/10 • Enter •
 
7/3/10 • Enter • Forystugrein
 
5/3/10 • Enter • Forystugrein
 
4/3/10 • Spesi • Gagnrýni
 
27/2/10 • Enter • Gagnrýni
 
— SPILADÓS —
— SMÁAUGLÝSINGAR —

Til sölu

Litlar, sætar og sérlega mjúkar Playboykanínur, kassavanar. A.v.á.

Auglýsendur!

Að gefnu tilefni skal minnt á að ekki er tekið við auglýsingum á vefinn nema frá fyrirtækjum sem sannanlega eru í eigu Baggalúts-samsteypunnar eða tengdra aðila.

Stjörnukokkar

Vinsæla kattahakkið komið aftur. Fyrstir koma fyrstir fá!

Greiðendur fasteignagjalda!

Munið að þótt þið eigið í raun minna en ekkert í húsunum ykkar og bankinn gæti hirt þau af ykkur hvenær sem er, þá verðið þið samt sem áður að borga fasteignagjöldin. Svona erum við ógeðslega sniðug!
Sveitarfélögin

Auðtrúa asnar athugið!

Myntkörfulánin sívinsælu eru komin aftur!
Bankarnir

— FRÉTTIR —
Strákarnir í Icesavenefndinni fóru í „djóksleik“ fyrir ljósmyndara Baggalúts. Fulltrúi Hollendinga fylgist skelkaður með.

Krakkarnir í Icesave-nefndinni slepptu algerlega fram af sér beislinu um síðustu helgi, þar sem þeir voru við „fundahöld“ í Lundúnum. Er nú svo komið, skv. heimildum Baggalúts, að Bretar og Hollendingar eru við það að gefast upp á eilífu partýstandi, ungæðislegu flippi, barnaskap og skrílshætti íslensku samninganefndarinnar.

„Strákar verða alltaf strákar,“ sagði Lee Buchheit, talsmaður nefndarinnar í samtali við Baggalút.

Samtök Mammonsdýrkenda fengu veglegan styrk til musterisbyggingarinnar frá Þjóðhátíðarsjóði.

Íslenskir peningahyggjumenn vinna nú hörðum höndum að því að reisa nýtt musteri helguðu guðinum sívinsæla Mammoni í Borgartúni.

Segja þeir til skammar hvernig eldri musteri hafi skipulega verið vanhelguð og saurguð af kommúnistum og öðrum „auðhöturum“.

Ef allt gengur samkvæmt áætlun getur messuhald hafist á vormánuðum. Áætlað er að hefja starfsemina með trukki með veglegum gjaldkerafórnum, auk þess sem áætlað er að skipa Hreiðar Má Sigurðsson verndardýrling afleiðusamninga við opnunina.

Enter17/3/10
Hér má sjá 1.246. bindi skýrslunnar en það nefnist „Ábyrgð ljósmæðra“.

Útgáfu á skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis hefur verið frestað. Tefst útgáfan að sögn „eitthvað pínu smávegis í viðbót“ og er hennar að vænta „um eða eftir páska eða eitthvað aðeins seinna“.

Samkvæmt heimildum hefur prentun skýrslunar gengið nokkuð vel en hún verður gefin út í 1.800, ákaflega smekklegum gylltum og smaragðslögðum bindum.

Hins vegar strandar útgáfan nú á prentun viðauka því ósýnilega indverska blekið sem þeir eru prentaðir með kláraðist um helgina.

Enter17/3/10
Hér sjást feðgarnir með útrásarvíkingana og einn ókunnan þorsk.

Feðgarnir og víkingaveiðararnir Alfons og Gulli klófestu snemma í morgun þrjá af hinum svokölluðu útrásarvíkingum.

Víkingarnir höfðu brugðið sér í þorsklíki til að dyljast blóðþyrstum almenningi, en komu upp um sig þar sem til þeirra sást gæða sér á styrjuhrognum og öðrum dýrindis sjávarréttum skammt austur af landinu – um leið og þeir reyndu að greiða nokkrum skelfdum súlum fyrir að dansa fyrir sig.

Verið er að kyn- og aldursgreina víkingana, en að svo búnu verður höfðum þeirra komið fyrir á þartilgerðum stöngum fyrir framan Stjórnarráðshúsið.

Enter16/3/10
Enginn veit hver útbjó þennan smekklega en jafnframt forsmáða kaffibolla.

Icesave kaffibollinn, sem fylgt hefur um 194.000 fréttum, umfjöllunum og fréttaskýringum af Icesave málinu er hataðasta fyrirbrigði Íslandssögunnar, samkvæmt nýrri og býsna umfangsmikilli könnun.

Listinn er eftirfarandi:

1. Icesave kaffibollinn
2. Icesave sparibaukurinn
3. Móðuharðindin
4. Bahama
5. Icesave
6. Essasú
7. Gunnarshólmi
8. Einokunarverslun Dana
9. Fugladansinn
10. Ragnar Reykás

Enter14/3/10
Lykla-Pétur. Myndin er sviðssett.

Símon Pétur, postuli og rekstrarstjóri Himnaríkis segir rekstur þessa fornfræga athvarfs hólpinna sála vera kominn í algert þrot, eftir glæfralega óstjórn og offjárfestingar eigenda félagsins undanfarinn áratug.

Segir Pétur að stólað hafi verið á gríðarlegan vöxt og fjölgun íbúa og því hafi verið ráðist í miklar framkvæmdir til að auka framboð á lóðum og húsnæði. Allar forsendur hafi hins vegar brugðist, enda hafi meiripartur vestrænna manna farið beina leið til helvítis undanfarinn áratug, sökum yfigengilegrar græðgi, eigingirni og almennrar mannvonnsku.

Fullyrðir Pétur að bæði geist- og veraldleg stjórnvöld hafi brugðist algerlega og krefst tafarlausra úrræða. Kveðst hann helst af öllu vilja skila inn lyklunum af Gullna hliðinu og byrja upp á nýtt á nýrri kennitölu.

Enter13/3/10
     1, 2, 3 ... 774, 775, 776  
Facebook Gogoyoko Tonlist.is RSS

Baggalútur er hýstur með stolti hjá SKÝRR

— AF HANDAHÓFI ÚR FRÉTTASAFNI —
Petrína og Páll hafa mest gaman af að leiðast og drekka heitt súkkulaði.

Þau Petrína Ploder, jarðfræðinemi og Páll Pálsson, eðlisfræðinemi, halda því fram að þau hafi náð að fella hugi saman án þess að notast við nútíma tækni svo neinu nemi.

Þau eiga hvorki GSM síma né hafa þau aðgang að Interneti, hvorki tölvupósti né spjallrásum. Þau fóru aldrei í bíó á fengitímanum, horfðu ekki á Friends og fóru aldrei saman í bíltúr utan einu sinni að þau tóku saman strætó frá Hlemmi og upp í Grafarvog, þar sem þau búa.

Ef þetta reynist rétt er það í fyrsta skipti frá lagningu talsíma á Íslandi sem þetta gerist.

Enter7/6/04

— SJÓNVERPILL —
— DAGATAL —
— Í FRÉTTUM ÞENNAN DAG —