Mér finnst gott að maula ís,
mikið fínt og gaman.
Mamma er sko í mussu úr flís,
mikið er það gaman.
Er annars að pæla í því hvort þetta „sko“ eigi kannski ekkert heima þarna. Það er náttúrulega danska.
Skelfilega getur fólk verið skammsýnt. Hér er ég með frábærar tillögur, tímamótatillögur, um að breyta Breiðholtinu í stærsta friðland apa í heiminum. En manni er ekki einu sinni ansað hjá borgarskipulagi. Bévítans molbúar.
Kreppir að í kaldri vík
konungsríkið er að brenna.
Ef ég mínum aldri lýk
– er það líka mér kenna?
Úff. Ég verð að hætta að glápa á þennan handbolta. Reif næstum af mér hendurnar í lokafagninu. Landsleikjaáhorf eru ekki fyrir holdsveika.