Ég orti nýtt kvæði í morgun. Ég held að ég sé að ná að fullkomna stílinn.
Mér finnst gott að maula ís,
mikið fínt og gaman.
Mamma er sko í mussu úr flís,
mikið er það gaman.
Er annars að pæla í því hvort þetta „sko“ eigi kannski ekkert heima þarna. Það er náttúrulega danska.
Fyrr munum vjer dauðir liggja en láta þá smán yfir þjóð vora ganga að hún gangist enn á ný undir ægivald hins norska konungdæmis. Að hæstvirtur ráðherra utanríkismála skuli dirfast svo mikið sem að ræða við þessa samviskulausu kúgara sem...
Dæmigert, dínarinn kominn í 1,15 krónur - og Gudda auðvitað nýfarin í verslunarferð í Barbaríið.