Ţessi mynd náđist af ţrjótnum úr eftirlitsmyndakerfi í íbúđ tengdamóđur hans.

Sturlađur Hafnfirđingur réđst á vefsíđu Baggalúts síđdegis í dag.

Mađurinn, sem er ţekktur tölvuţrjótur og netníđingur, kom auga á síđuna á tölvuskjá tengdamóđur sinnar og missti algerlega stjórn á skapi sínu.

Greip hann nálćga öxi og lét höggin dynja á tölvunni og ýmsum innanstokksmunum, ásamt ţví ađ brúka afar ókristilegan munnsöfnuđ um ritstjórn Baggalúts, holdafar tengdamóđurinnar og Internetiđ almennt.

Vefsvćđi Baggalúts og tengdamóđirin eru ađ mestu óskemmd eftir atvikiđ, en tölvan – sem var af asískri gerđ – er gerónýt.

Áhöld til viđamikillar neyslu fundust í kjallara Seđlabankans.

Ónefndur bankaráđsmađur Seđlabankans, er ekki vanhćfur til ađ sinna verkefnum bankaráđsins ţrátt fyrir ađ hafa hafa skipulagt stórar svall- og mannátsveislur hjá kunnu stórfyrirtćki á útrásartímanum svokallađa.

Ţetta segir formađur bankaráđs Seđlabankans, sem segir viđkomandi starfsmann hafa unniđ 'drullufínt starf' í bankaráđinu og vill ógjarnan missa hann.

„Ţetta er bara eitt af ţví sem tíđkađist á ţessum árum. Ég held ađ allir geti veriđ sammála um ađ ţetta sé ogguponsulítiđ óheppilegt fyrir viđkomandi – en ţađ er nú engin ástćđa til ađ gera mál úr ţessu.“

Áćtlađ er ađ um 93% af bílaflota landsmanna sé nú á Reykjanesbrautinni.

Gríđarleg umferđ er nú um Reykjanesbraut og hafa langar rađir myndast allt frá Hafnarfirđi og ađ Keflavíkurflugvelli.

Svo virđist sem mikill ótti hafi gripiđ um sig međal landsmanna eftir ađ ljóst var ađ VG fengi úthlutađ nýju innanríkisráđuneyti.

Reynir lögregla eftir fremsta megni ađ hafa stjórn á mannfjöldanum, en reynist sérstaklega erfitt ađ hafa hemil á óttaslegnum sjálfstćđismönnum, sem margir hverjir eru gersamlega sturlađir af hrćđslu.

Nú er um ađ gera ađ skella sér í messu og setja feitt lćk á ritningarlesturinn.

Ţjóđkirkjan hefur ákveđiđ ađ bregđast viđ sívaxandi ímyndarvanda sínum međ ţví ađ ađlaga sig nýrri tćkni og auka um leiđ ţjónustu viđ kirkjugesti.

Hefur svokölluđum like-hnöppum veriđ komiđ fyrir viđ hvert sćti í öllum kirkjum landsins, sem fólk getur smellt á kunni ţađ vel ađ meta orđ prestsins, sálmasöng eđa orgelspil.

Hefur nýja kerfiđ mćlst vel fyrir og gefist vel viđ skírnir, brúđkaup og almennt messuhald – ţó eilítiđ hafi boriđ á misnotkun ţess viđ jarđarfarir.

Ţá hefur hinu úrsérgengna 'ameni' alfariđ veriđ skipt út fyrir hátt og snjallt 'lćk!' viđ messuhald.

Dćmigerđur Maríuhani

Lögreglan hefur stöđvađ umfangsmikla rćktun á Maríuhana á Suđurlandi. Maríuhaninn ţykir mikiđ lostćti, ýmist reyktur eđa bakađur. Hann er hins vegar í útrýmingarhćttu, enda er Maríuhaninn sveimhuga og á afar erfitt međ ađ einbeita sér. Ţar ađ auki gengur erfiđlega ađ rćkta stofninn upp sökum ofsókna hinna ýmsu yfirvalda.

Forsvarsemenn rćktunarinnar héldu ţví fram ađ um misskilning vćri ađ rćđa og ađ rćktunin vćri lögleg. Lögreglan tók hins vegar ekki mark á ţví og lét umsvifalaust fella allan stofninn.

Úrrćđiđ ţykir í senn stílhreint og smekklegt.

Ríkisstjórnin kynnti i morgun nýtt úrrćđi fyrir skulduga einstaklinga og heimili; skuldagreiđslujöfnunarađlögun.

Ekki er vitađ hvernig úrrćđiđ virkar, né fyrir hverja ţađ er nákvćmlega - en vonast er til ađ ţađ komi til međ ađ nýtast sem flestum.

Páll verđur framvegis í harđlćstri dagskrá eftir miđnćtti á miđvikudögum.

Stöđ 2 hefur tryggt sér útsendingarrétt á Páli Magnússyni, útvarpsstjóra.

Ţetta kemur fram í tilkynningu frá Stöđ 2, undirritađri af Ara Edwald, ađ međfylgjandi litlum broskalli og alţjóđlegu gleđiupphrópuninni 'LOL'.

Er ţetta enn eitt áfalliđ fyrir RÚV á skömmum tíma, en samkvćmt heimildum Baggalúts eru líkur á ađ fleiri fastir dagskrárliđir fylgi í kjölfariđ á nćstu dögum – ţ.á.m. táknmálsfréttir, Kastljós, auglýsingar og hin sívinsćlu dagskrárlok.

Ţađ er ţó huggun harmi gegn ađ RÚV mun hafa tryggt sér útsendingar á Wallander til ársloka 2052.

Myndin tengist fréttinni ekki – ţannig lagađ.

Samkvćmt áreiđanlegum heimildum Baggalúts stendur til ađ stokka ćrlega upp í rikisstjórn Jóhönnu Sigurđardóttur.

Í stuttu símaviđtali viđ Jóhönnu seint í nótt kom ýmislegt fróđlegt í ljós. Ćringinn og 'flippmógúllinn' Ögmundur Jónasson mun 'koma ferskur inn í innanríkissjittiđ' um leiđ og utanţingsráđherrarnir Ragna 'Gothmálagella' og Gylfi 'partípúpa' Magnússon víkja.

Ţá mun Álfheiđur Ingadóttir, sem hefur ađ sögn Jóhönnu veriđ 'frámunalega ţurr og leiđinleg í staffapartíum' víkja fyrir nýjum stuđmálaráđherra – Gutta 'Glitter'.

Ný og öflug loftnet á lóđ fyrirtćkisins tryggja ađ útsendingar Baggalúts munu nást á Vestfjörđum í vetur.

Samningar hafa náđst um endurfjármögnun og áframhaldandi starfsemi útgáfu- og afţreyingarrisans Baggalúts. Ljóst er ađ starfsemin verđur áfram á Internetinu, en um tíma var útlit fyrir ađ hún yrđi flutt alfariđ yfir á textavarpiđ.

Međal nýjunga á ţessu 10. starfsári Baggalúts má nefna grímulausan áróđur sem viđ kjósum ađ kalla BMX – Gallsteina, stórkostlega endurbćtt útlit, sem hannađ er af nemendum hannyrđa- og fágunarskóla Sigţrúđar í Grafarholti – auk ţess sem sérstakt tillit er tekiđ til farsímaunnenda, sem geta nú notiđ lystisemda Baggalúts á m.baggalutur.is.

Ađ gefnu tilefni skal ţó tekiđ fram ađ Randver verđur ekki međ ađ ţessu sinni.

Lagiđ er sviđsett.

Ritstjórn Baggalúts heldur nú í sitt árlega og langţráđa sumarfrí.

Á međan viđ sólum okkur í suđurhöfum getiđ ţiđ ornađ ykkur viđ dćgilegan nýjan sumarsmell, Gćrkvöldiđ, sem er lítill óđur til horfinna gleđistunda.

Lagiđ má nálgast hér.

Enter

Hvađa mölúldni og mađkétni óţverri hefur eiginlega fengiđ ađ viđgangast í ţessari bann- og skuldsettu Orkuveitu okkar? Fordćmalaus óráđsía, gegndarlaust fimbulsvínarí og linnulaust gleđispređ međ almannafé.

Fussumfokkingssvei.

Ég legg hér međ til og mćli um ađ eigendur ţessa útmigna sandkassa helstu gćludýra borgaryfirvalda, reki alla oföldu orkuboltana öfuga út úr ţessu bruđlhýsi án tafar og komiđ ţeim fyrir í látlausu húsnćđi annars stađar í borginni. Ţađ er t.d. ágćtis hús á horni Suđurlandsbrautar og Gernsásvegar, sem gćti hentađ starfseminni fullkomnlega.

Orkuhreiđrinu mćtti svo gjarnan breyta í leikskóla – međ heimsins stćrsta boltalandi í anddyrinu.

1/9/10 Lesbók

RIKKI G. skrifar á fésbókarsíđu útvarpsstöđvarinnar FM957 í morgun:

„Sććććlar! Hver er Facebook notkun ţín á dag í klukkutímum taliđ??“.

Stuđávarpiđ 'Sććććlar!' kannast ég ekki viđ í ţessari mynd. Ţrjú ć eru feykinóg til áhersluauka. Auk ţess ţykir mér óţarfa bruđl ađ nota tvö spurnarmerki í lok setningar. Nema mađur sé ţeim mun áfjáđari í ađ fá svar um hćl – sem máske var raunin í ţessu tilviki.

Ţórunn, hún ţarf sig ađ passa.
Ţurfi hún hljóđnemađ kjassa
mćtti hún minna
mala viđ kynna
um annarra ćttingja rassa.

Kosiđ hef ég kúkalabba
kjána, bjána, idíjóta
sem skrökva, ljúga, ginna, gabba
gefin loforđ svíkja, brjóta.

Enda sjálfur aligrís
sem ekkert skárra kýs.

Baggalútur er hýstur međ stolti hjá SKÝRR
Söngleikurinn „Baugsmáliđ“ var settur upp í Íslensku óperunni. Hér sjást tveir upprennandi tenórar í hlutverkum ţeirra Hreins Loftssonar og Jóns Ásgeirs.

Söngleikurinn „Baugsmáliđ“ var settur upp í Íslensku óperunni. Hér sjást tveir upprennandi tenórar í hlutverkum ţeirra Hreins Loftssonar og Jóns Ásgeirs.

Ţráinn Bertelsson (61) var á Kaffi Austurstrćti og gerđi tappadjókinn sinn fyrir ljósmyndara Baggalúts.

Ţráinn Bertelsson (61) var á Kaffi Austurstrćti og gerđi tappadjókinn sinn fyrir ljósmyndara Baggalúts.

Eiríkur (19) og Helgi (21) áttu ákaflega ánćgjulega stund á Kaupfélaginu.

Eiríkur (19) og Helgi (21) áttu ákaflega ánćgjulega stund á Kaupfélaginu.

Ţađ er ekkert sem jafnast á viđ góđa pulsu.

Ţađ er ekkert sem jafnast á viđ góđa pulsu.

Stjórnarformađur Baugs var í góđu stuđi á NASA og bauđ öllum sem vildu uppá gufusođna grísapylsu međ öllu.

Stjórnarformađur Baugs var í góđu stuđi á NASA og bauđ öllum sem vildu uppá gufusođna grísapylsu međ öllu.

Heljarinnar fjör var í innflutningsteiti kvennaathvarfsins ţegar viđ litum ţar viđ.

Heljarinnar fjör var í innflutningsteiti kvennaathvarfsins ţegar viđ litum ţar viđ.

Baggalútur er eini skemmtistađur landsins sem leyfir reykingar, apahald og nektardans. Skrifstofan er opin alla miđvikudaga frá kl. 8.30–13.45.

Vinsamlegast hafiđ samband viđ ritstjorn@baggalutur.is ef ţiđ viljiđ kaupa hlutabréf, kvarta – ellegar tilkynna um lífsmark á öđrum lífstjörnum.