Mér finnst gott að maula ís,
mikið fínt og gaman.
Mamma er sko í mussu úr flís,
mikið er það gaman.
Er annars að pæla í því hvort þetta „sko“ eigi kannski ekkert heima þarna. Það er náttúrulega danska.
Hnignun heims
og harmakvöl
sturlun lýðs og stýfing vits
met ég mannkyns
mesta böl:
Dojsaröss og Djöstforkits
Búinn að finna slagorð á nýja ráðgjafarfyrirtækið mitt:
Lausnarinn - heildarlausnir á alhliðasviði.
Nef ég þerra; vorið vekur
vefi þrútinna nasa.
Ef ég hnerra horið lekur
– hef því klút minn í vasa.