Mér finnst gott að maula ís,
mikið fínt og gaman.
Mamma er sko í mussu úr flís,
mikið er það gaman.
Er annars að pæla í því hvort þetta „sko“ eigi kannski ekkert heima þarna. Það er náttúrulega danska.
Harmi sleginn kveð ég Knút,
krónprins hvítabjarna.
Fjaraði hans ferill út
sem fokkdöpp barnastjarna.
Ljósmóðir, ljósmóðir
leiðindaslytti,
vemmilegt, væmið
vitsmunamorð.
Fari það fjósslóðir
fúlum í pytti.
Klígjulegt, klæmið
og klunnalegt orð.
Helvítis andskotans asni var ég að vera að púkka upp á þetta Íslendingapakk. Ég hefði betur eytt orku í að berjast fyrir sjálfstæði Færeyinga, eins og mamma sagði mér alltaf að gera.