Það er ekki laust við að um mann fari notalegur fiðringur þessa dagana.
Kannski lærist þessu uppblásna þéttbýlispakki nú loksins að eina vitið er að byggja sér gott fjárbú fjarri skarkala heimsins.
Jæja. Þá er kallinn kominn á íslenska kúrinn.
Blóðmör, hamsatólg, harðfiskur með sméri og appelsín í öll mál.
Það verður spennandi að fara á vigtina um helgina.
Flón sem eigið föðurland
fylltu raunum
ylja sér við eigið hland
á ofurlaunum.