Fokk! Meðlagið komið uppí næstum því 20 þúsund kall!
Aumingja pabbi...
Sko til. Búið að troða litla sætabrauðssnúðnum honum Palla Magg inn í Bankasýsluna. Lengi von á einum. Ég var farinn að halda að flokkshræið væri farið að úldna á safnhaug sögunnar, en nei, þá kemur eitthvað svona til að gleðja gamla steinrunna framsóknarhjartað. Þarna þekki ég ykkur gömlu refir.
Þar sem áður slaufur, bindi blöktu
barkakýli huldu löngum þingum
og svitakirtla af dúri værum vöktu
– verður krökkt af loðnum þingmannsbringum.