Æðar víðar trukkar teppa;
tefja lýð er þarf að skreppa.
Bensínstríð nú hrjáir hreppa
hörð er ríður yfir kreppa.
Allt mitt verk er einskis nýtt
enginn mun þess njóta
sé því trautt á torrent ýtt
til þess dán að lóda.
Gleymist fljótt mitt fagra starf
fáir um það tala
ef allt mitt pauf og allt mitt garf
engir niðurhala.
Endi ég mitt ævipot
upp sér fáir kippa
ef bækur mínar blöð og krot
bísar ekki rippa.
Ef þú þjóð, vilt minnast mín
og milda dauðahretið.
Troddu mér í skráarskrín
og skelltu mér á netið.
Note to self: Ekki skrifa ódauðlega sonnettu á kjörseðlinn. Það ógildir atkvæðið...