Lesbók27.05.02 — Enter

Óskaplega sérstakur maður hann Númi Fannsker. Við félagarnir mældum okkur mót heima hjá Kaktuzi til að horfa á Júróvisjón, eins og venjulega. Að gamni höfðum við dálitla keppni hér innanhúss um það hver myndi sigra söngvakeppnina og valdi Númi Sviss eins og venjulega. Þegar úrslitin voru ljós rauk hann út í fússi og skellti hurðum - eins og venjulega.

Ég meina, maðurinn er búinn að veðja á sama landið síðan 1956, þegar hann kolféll fyrir kabarettglyðrunni Lys Assia, og er svo alltaf jafn skúffaður þegar þetta undirmálsríki tapar og hleypur grenjandi upp á ritstjórn og drekkur sig í hel. Hann hnuplaði meir að segja lúdóteningunum hans Myglars með sér í þetta skiptið.

 
Enter — Sálmur
 
Númi Fannsker — Forystugrein
 
Enter — Forystugrein
 
Enter — Forystugrein
 
Enter — Forystugrein
 
Númi Fannsker — Forystugrein
 
Enter — Sálmur
 
Enter — Forystugrein
 
        1, 2, 3, ... 180, 181, 182