Lesbók06.01.04 — Enter

Óskaplega á nú vesalings aumingjans ræfilshróið hún Breiðný Spears óendanlega herfilega bágt alltaf hreint.

Greyskinns stelpuskrípinu lánast ekki einu sinni að gifta sig án þess að allt fari í handaskol og beinustu leið til andskotans.

Mikið kenni ég í brjósti um þennan ylhýra ameríska engil. Það nístir og skekur hjarta mitt að sjá svo komið fyrir þessari gáfum gæddu dásemdar þokkagyðju.

Þokkalega.

Ég þori vart að hugsa til enda hvaða helbláu glapstigu hún Breiðný mín fetar þessa dimmu tregadaga. Hvaða déskotnu ólyfjan hefur þessi brothætta brosmilda perla brutt og sopið til að espast þannig upp að neongylltu altari í ormagryfjunni Las Vegas? - með þessum líka forheimska fenjafroski, Jasoni Alexander.

Besta Breiðný mín, farðu vel með þig. Hringdu ef eitthvað er.

 
Enter — Forystugrein
 
Enter — Forystugrein
 
Enter — Sálmur
 
Númi Fannsker — Forystugrein
 
Enter — Sálmur
 
Spesi — Forystugrein
 
Númi Fannsker — Forystugrein
 
Enter — Forystugrein
 
Enter — Forystugrein
 
     1, 2, 3 ... 180, 181, 182