Við Enter brugðum okkur í afmæli hjá blaðakonunni ungu sem tók viðtal við okkur fyrir Vikuna á sínum tíma. Mauluðum hjá henni rjómatertur og sötruðum alvörukaffi. Færðum henni afar veglega gjöf í tilefni dagsins og heilsuðum upp á fræga fólkið. Það kom okkur verulega á óvart hvað Auður Haralds er eðlileg.