Mér finnst gott að maula ís,
mikið fínt og gaman.
Mamma er sko í mussu úr flís,
mikið er það gaman.
Er annars að pæla í því hvort þetta „sko“ eigi kannski ekkert heima þarna. Það er náttúrulega danska.
Þvílíkur ófögnuður. Ég er búinn að vera í allan morgun að smúla laugina.
Þetta er í síðasta skipti sem Órækja fær að halda partí.
Auri fylla eyru
Eurovisjónbúrar.
Gleðjast gey á iði;
gísl er Ísland þeirra.
Af því úldna efni
Evrópa er dópuð
Fnykr fúll af öllu
- fökk, hvat þetta sökkar.
Ég hef fulla samúð með sjálfstæðisbaráttu þeirra Tíbetlinga – þó það nú væri. En fjandakornið, hvernig á nokkur að taka alvarlega menn sem raka af sér allt hárið og spranga um í appelsínugulum kjólum? bartalausir og berleggjaðir?