Frá Gatnamálastjóra
Terlínjakkarnir komnir. Margar stærðir. Svartir og bláir. Straufríir.
Fjölpóstur!
Óska eftir að kaupa allan fjölpóst merktan eða með myndum af Kjartani Magnússyni. A.v.á.
Kennitöluflakkarar
Mikið af skemmtilegum og töff nöfnum að losna. Kynnið ykkur úrvalið. Fyrirtækjaskrá.
Sígaretta
lítið reykt, með dálitlum fölrauðum varalit á filter fæst fyrir lítið. Fyrstir koma, fyrstir fá.
Tenór óskast strax
í meðalstórt hugbúnaðarfyrirtæki góð Excelkunnátta nauðsynleg.
A.v.á.
Vélmenni
128K HOME-SABER 2000 vélmenni með uppvasks- og ryksugunaruppfærslu fæst keypt gegn sanngjörnu verði eða í skiptum fyrir asíska unaðsdúkku. A.v.á.