Drusla!
Ábyrgðarlaus drusla á þrítugsaldri óskar eftir að kynnast karlmanni á fertugsaldri, með nánari kynni í huga. A.v.á.
Talibanar
munið bingóið í kvöld. Maggi verður með nikkuna. Nefndin.
Gagnnjósnari
óskast. Þarf að geta hafið störf strax. Góð tök á bæði færeysku og íslensku æskileg. Gott kaup.
Miðaldra marbendill
óskar eftir að leigja herbergi á Höfuðborgarsvæðinu. Skilvísum greiðslum heitið. Þarf að hafa gott aðgengi að baði.
Óska eftir að kynnast konu...
...til að flytja eignir mínar yfir á. Verður að hafa gott viðskiptavit og koma vel fyrir í fjölmiðlum.
A.v.á.
Á að mótmæla?
Heykvíslar, tjara, fiður og lambhússettur í miklu úrvali. Einnig auðmannavúdúdúkkurnar vinsælu.
Mótmælaþjónusta Magga.