Til sölu
Fullkominn búnaður til langra ferðalaga um útgeim. Talsvert notaður. A.v.á.
Vottar Jehóva
Vorum að fá nýja sérstyrkta leðurskó með stáltá, tilvaldir í gættina.
Skóbúð Skafta.
HEIMASÍÐUR, HEIMASÍDUR, HEIMASÍDUR !!!
Vegna mistaka við innkaup höfum við umfram lager af flippuðum og hressum heimsíðum. Þarftu að koma fyrirtæki á framfæri? Ertu í ástarsorg? Eða bara atvinnulaus? Hvernig væri að skella sér á nýja heimsíðu hjá okkur???
Heimasíðurgerð Flippa
2 fyrir 1 til Pyongyang
Vegna gífurlegrar eftirspurnar höfum við bætt við fjórum sætum í ævintýra- og sælkeraferð til Pyongyang í N-Kóreu.
Lúdóferðir
Til sölu
Lítið notuð æra. Fæst fyrir lítið fé.
Vel með farið
eintak af spennusögunni „Þrír um leyndarmálið“ fæst í skiptum fyrir heillegar snjóþvegnar gallabuxur. Fullum trúnaði heitið.