Skrípó
m.baggalutur.is Facebook Tvítill Tónlist.is iTunes YouTube Instagram RSS
Fréttir
Myglar – 24.04.23
 
Enter – 31.05.21
 
Enter – 22.10.20
 
Enter – 17.02.20
 
Lesbók
Enter
 
Þjóðbók
Smælki

„Amma“ óskast

í skiptum fyrir vel með farinn móðurbróður. Á sama stað fást ljúffengir nýgotnir blendingshvolpar. Getum úrbeinað fyrir þá sem vilja.
a.v.á.

Kassavanur

balroggsungi fæst gefins á gott heimili. A.v.á.

Borgarstjórar

Undirbúningsnámskeiðin eru að hefjast! Aðeins tæplega 50 sæti laus - síðasti séns ef þú ætlar að ná að setjast í stólinn á þessu kjörtímaibili.

Til sölu

lítið notað mannorð. Nokkuð flekkað - þarfnast viðgerðar og hreinsunar.
A.v.á.

Aðildarumsóknir

Eigum fyrirliggjandi ýmsar aðildarumsóknir; Evrópusambandið, NATO, OPEC, IRA, LIKUD, Sameinuðu arabísku – og margt fleira.

Umsókna og eyðublaðamiðstöð Eyþórs

Heilar!

Á fyrirliggjandi vel varðveitta heila úr nær öllum látnum stjórnmálamönnum liðinnar aldar. Falleg tækifærisgjöf. A.v.á.

Baggalútur er hýstur af alúð og umhyggju hjá ADVANIA