
Það er nú meiri óbilandi andskotans aumingjagæskan sem tröllríður þessu þjóðfélagi.
Ósjálfbjarga aumingjum og þurfalingum er daglega bjargað úr eigin gryfjum og gildrum. Allt gert til að létta undir þeim og allt kapp lagt á að þrífa eftir þá skítinn og skömmina.
Já, það er gott að vera aumingi á Íslandi.
Ógeðslega ríkur og umsvifamikill aumingi – auðmingi.
Og mikið vona ég að aumingjans aumingjarnir fái allar sínar skuldir fyrirgefnar og afskrifaðar – svo þeir nái nú auðæfum sínum og allsnægtum sem fyrst aftur. Komi undir sig fótum sínum og fyrirtækjum án óþarfa tafa og tilfærslna. Því þeirra bakland er ríkið – mátturinn og dýrðin.
Hinir sem ekkert áttu og aldrei nutu neins, hafa jú einskis að sakna og engu að tapa. Enda ekki aumingjar.
Heyrið mig nú. Hvað er eiginlega með þessa Tjörn?
Á bara að taka því þegjandi og hljóðalaust að besta byggingarland borgarinnar liggi undir vatni?
Fólk er að væla yfir því að einhverjir örfoka melar uppi á heiðum séu á leiðinni undir vatn og svo liggur þessi daunilli drullupollur fyrir fótum manns alla daga, engum til ánægju nema brauðbelgdum vargfugli.
Þarna mætti nú aldeilis byggja eitthvað skemmtilegt. Tívolí til dæmis, bílabíó, hafnarboltavöll - eða kappakstursbraut.
Svo maður tali nú ekki um þann möguleika sem mér hugnast best, nefnilega að leggja þarna almennilega flugbraut - og flytja alþjóðaflugið í miðbæinn í eitt skipti fyrir öll.
Þá mætti í kjölfarið fylla Flugstöð Leifs Eiríkssonar af vatni og gera að veglegu sædýrasafni - með nægum bílastæðum.