Tími fyrir myndir
Það er kominn nokkur slatti af textafélagsritum núna, svo ég ætla að skella einu myndafélagsriti inn. Þetta er nú bara Esjan þó það sé kannski ekki það fyrsta sem þér datt í hug lesandi og áhorfandi góður.
[img] http://www.nulleinn.is/files/bloggpics/165200548964084.JPG[/img]
Endilega spökulerið.
Tek undir með Þarfa með ólguna... finnst samt eins og ég sé að horfa á mikið óveður undir klettabelti og einhverjar ólukkulegar sálir kúldrist þarna undir berginu á lítilli kænu, bráðum öllum týndar.
Er þetta þín eigin sköpun?
Æ takk Limbri, en ég held að hún sé nú ekki mikils ef einhvers virði [Roðnar]
Djúp og blá.
Litla, þú ert ekki góður sölumaður. Seldu Limbra þetta meistaraverk dýrum dómum. Hann á ekki eftir að finna neitt betra í langan tíma.