Lesbók15.04.04 — Númi Fannsker

Ég var að gramsa í gömlu dóti og rakst þá á nokkur kvæði sem ég orti um vin minn Volvó:

Vakur ertu Volvó sanseraður,
vekur jafnan yl og unaðskenndir.
Mótór þinn og messinggripir renndir,
mikill er þinn þokki' og gangur hraður.
-- -- -- --
Volvó, þú ert vinur minn og bróðir.
Vöknar mér um augu í návist þinni.
Stöðugt er þitt stýri og hemlar góðir,
stórkostleg öll virkni í bifreiðinni.
-- -- -- --
Ertu veikur Volvó minn á geði?
Vélin hikstar, stimplar haltir ganga.
Þú ert sjálfsagt þreyttur mjög á streði,
því sem gegnir röskur daga langa.

Það er ekkert grín að vera ekið,
út og suður brekkur, slóða og vegi.
Rammt er afl þitt, eftir því er tekið.
Reiðubúinn jafnt á nótt sem degi

 
Kaktuz — Saga
 
Kaktuz — Sálmur
 
Númi Fannsker — Sálmur
 
Fannar Númason Fannsker — Forystugrein
 
Númi Fannsker — Forystugrein
 
Númi Fannsker — Forystugrein
 
Númi Fannsker — Forystugrein
 
Númi Fannsker — Sálmur
 
Enter — Forystugrein
 
Númi Fannsker — Forystugrein
 
        1, 2, 3 ... , 180, 181, 182