Þjóðbók
Dr. Helgi Pjeturss
nyal.extraterretory.lu
Ég hefi af því þungar áhyggjur að amerískir kvikmyndadólgar sýna landið okkar æ oftar sem svokallaðan „tökustað“. Sérstaklega í tengslum við kvikmyndir sem ætlað er að höfða til vera af öðrum lífsstjörnum.

Ég tel aðeins tímaspursmál þar til gerkosmískar verur, t.d. geimverur fara að taka fólk, ófrjálsri hendi og án þess samþykkis, af þessum stöðum.
Snorri Sturluson
Aumt er Ísland
enginn sómi
glötuð virðing, vegsemd.
Heillum horfin
hímir svikin
þjóð í djúpum draumi.

Illt er umtal
eiturtungna
nöðrum netið ofið.
Aumt er Ísland,
eymdarbæli.
Þung er sorg á sinni.

 
Hjálmar Jónsson frá Bólu
Andskotans helvítis ekkisens þorri.
Andsvítans bévítans skrattskrambans þorri.
Déskotans rækallsins djöfulsins þorri.
Defilsins grefilsins ólukkans þorri.
 
Sr. Hallgrímur Pétursson
Þorri sestur, þrútnar sinni
þá er best að híma inni.
Rökkurgestur ringlar minni.
Reyni flest á eigin skinni.
 
Steinn Steinarr
Tíminn er eins og vatnið... #kalt #djupt #vitundminsjalfs #mynd #maluðafokkur #50/50 #rennainni #vms #veglausttilthurrdar #togv
 
Jesús Kr. Jósepsson
Vá! Takk fyrir allar afmæliskveðjurnar í gær. Öll lækin, pókin og kommentin. Maður er bara orðlaus. Knús á ykkur öll til baka sætu. Sússi. #jólabarn #YOLO #jóló #messíaserhress #afmælisstrákur #sússaknús #sætusætu #afmæliájólunumsökka #saddur #timbraður #iphonefrápabba #djammíkvöld
 
Steinn Steinarr
Við elskum okkar smjör.
Það er gult og mjúkt.

Og meistarakokkarnir segja:

Að þetta sé.
Besta smjör heimsins!

En þetta er bara tímabundið ástand.
Við höfum áður flutt inn smjör.
En þetta stafar af því.

Að það er.
Neyslubylting í fitunni!

Og við verðum að fá þetta smjör frá vinum okkar Írunum.
Og setja í örfáar vörur.
Og svo kemur bara næsta ár.

Með allri sinni mjólk!
 
Jónas Hallgrímsson
Ljósmóðir, ljósmóðir
leiðindaslytti,
vemmilegt, væmið
vitsmunamorð.
Fari það fjósslóðir
fúlum í pytti.
Klígjulegt, klæmið
og klunnalegt orð.
 
Egill Skallagrímsson
Gekk út ok vó mann. #LOL #hannvarfyrir #oheppinn #ups #kvidstunga #egilsadsjalfsogdu #egills #vegavinnan #hashtag #djofullerekfullr #efniidrapu #fimmtudagsflipper #YOLO
 
Snorri Sturluson
Nú er ég kannski ekki sérfræðingur, en ef ég hefði gert framhaldsmynd um þrumudrenginn Þór, þá hefði hún tvímælalaust borið titilinn: „Mjöllnir snýr aftur“.
 
Jónas frá Hriflu
WHOOP! WHOOP!
 
Steinn Steinarr
Gaf brabra;

ekkert eftir.
 
Fyrsti málfræðingurinn
Egill sendi:
„Bojobbobbobb skídlíbabbababojojojojo búbabobobobobobojojojoj heyjabobobboskiddlíbobbojojojobboboboj.“

Mylsnudreifari þakkar sendinguna og tekur undir hvert orð.
 
        1, 2, 3, ... 45, 46, 47  
m.baggalutur.is Facebook Tvítill Tónlist.is iTunes YouTube Instagram RSS
Fréttir
Myglar – 24.04.23
 
Enter – 31.05.21
 
Enter – 22.10.20
 
Lesbók
Enter
 
Úr þjóðbók

Tíhíhíhí. Kombar varildi nofloss aga Arnaldur!

Ehehe ... abarno flage ebr úmúsla metsala!!!

Felomo tarasa jól tromli spúrr. Tíhíhí.

Sjaldnast hef ég aura átt
í eignasafni mínu.
Aldrei gargað himinhátt
um heimsins kvöl og pínu.
Lifað hef í hljóðri sátt
á helst til þröngri dýnu.
Hlustað á hvern hjartans slátt
sem hlær í brjósti þínu.

Einar sendi:
„Leðurjakkarnir komnir,“ sagði í auglýsingu í Ríkisútvarpinu, hljóðvarpi í morgun. Heyr á endemi. Eru nú leðurjakkar með sjálfstæðan vilja og geta komið og farið eins og þeim sýnist? Og hvaða orðskrípi er þetta „leður“? Er þetta ekki enska; „leather,“ ellegar djöflaþýska „leder?“ Og „jakki?“ Hvað er það? Meiri enska; „jacket.“ Gott ef ekki danska; „jakke!“ Hér vitanlega átt við dýrshúðarblússur og færi betur að auglýsingin hljómaði svo: Dýrshúðarblússur eru til í verslun vorri.

Mylsnudreifari tekur undir hvert orð!

Er til of mikils mælst að þeir sem stjórna í Efstaleiti tali íslensku? Svona fólk kann ekki að tala og á ekki að tala. Réttast væri að hnýta fyrir raddböndin á þessum háu herrum sem fyrir löngu ættu að vera horfnir til annarra starfa en að dæla sínum málsaur yfir blásaklausa ÍSLENDINGA sem tala ÍSLENSKU á ÍSLANDI!

Baggalútur er hýstur af alúð og umhyggju hjá ADVANIA