Helblá krumlan kreistir mig
í kafi marar hafísinn
hve þá lengi lystir þig
að lafa þarna Davíð minn?
Hafið þið prófað að syngja hartbreikhótel með munninn fullan af mæjónesi? Sjúklega fyndið.
Þegar ég var úngur, eða ókei, ekki úngur - en ýngri, þá heyrði ég lag sem ég fékk samstundis á heilann. Þetta lag var í senn mélódyskt, hrynhreint og grípandi. Töfrum líkast!
Ég heyrði þetta lag í útvarpinu í gær og fékk það á heilann um leið. Og núna hljómar stöðugt í höfðinu á mér:
Prinspóló - þaðernúmeirigæjinn þessi Prinspóló;
hámar allan dæinnísig Prinspóló,
hvernig þolir mæinnalltaf Prinspóló?
Mér er um og ó!