Að gefnu tilefni vil ég minna fjárfesta á að ástand á hlutabréfamörkuðum ýmissa annarra lífsstjarna en okkar er mjög gott. Meir að segja í allnokkurri uppsveiflu.
Æi fokk. Gleymdi að senda lag í júróvisjón. Ég sem var búinn að semja þetta fína dúvopplag fyrir tvo frystitogara, blökkualbínóadverggelding og hvítlaukspressu.
Skelfing þykja mér ógeðfelldir þessir nafnleysingjar allir á netinu.
Minnir mig einna helst á lyddurnar og lítilmennin sem stóðu á bak við Íslendingasögunar í denn. Og þá sér í lagi huglausu kellinguna sem skrifaði Eglu.