Þjóðbók
E. Aaron Presley
elliprelli.gracelandblog.us
Auglýsi hérmeð eftir góðu húsráði til að ná hnetusmjöri úr börtum. Sumir segja að maður eigi ekki að baða sig upp úr hnetusmjöri - maður eigi bara að borða það. En þetta er bara það eina sem ég leyfi mér.
Egill Skallagrímsson
Yfir liggur uggur
ærinn landi vandi
Trump er himpið tregra
tálsýn hinna frjálsu.
Loksins lausir kosið
lúðasnúðar ríkja
minnis hafa mennska
mandarínu Banda.

[Uggur liggur yfir landi hinna frjálsu. Himpið Trump, tálsýn tregra, er ærinn vandi. Loksins hafa minnislausir lúðasnúðar Bandaríkja kosið mennska mandarínu.]
 
Sigurður Breiðfjörð
Kanntu brauð að baka?
Já það Kanye.
Svo úr því verði kaka?
Já það Kanye.
Ertu alveg viss um?
Já það er ég.
Eða ertu Kardashian að gabba mig?
 
Dr. Helgi Pjeturss
Almennt finnst mér að miðlar og aðrir þeir sem náð hafa tökum á gerkosmískum tengipunktum ættu að standa saman. Ég held til að mynda að með atfylgi allra þessara 365 miðla sem engum gera gagn í dag ættum við að ná góðu og stöðugu sambandi við aðrar lífstjörnur. Á móti gætu þeir endurheimt talsvert af dýrmætum áskrifendum sem hafa yfirgefið þetta tilverustig.
 
Jesús Kr. Jósepsson
Jæja, þetta er orðið gott.

Nú fer ég og skrái mig á Snapptjatt og Tinder og Twitter og allt þetta sjitt. Þið getið bara fylgt mér þar.

Þá er hægt að loka þessum kirkjum öllum og breyta þeim í hótel.
 
Jesús Kr. Jósepsson
Jæja. Loksins get ég sagt það.

Pabbi, þú ert íhaldssamur, fljótfær og sjálfhverfur karlrembufauskur.

P.S. Ég er fluttur til mömmu.
 
Davíð Stefánsson
Ellegar: „Blómstrandi BDSM dagar á Akureyri: Allt á að kveljast!

Ég finn það gegnum svefninn,
að einhver laumast inn
með útbúnaðinn sinn,
og veit, að það er konan,
sem kitlar „ofninn“ minn,
sem inn með tösku fer
að tánum fjöður ber
— og iljunum á mér.
Hugar svo að hnútunum
og herðir þar og hér.

Ég veit að hún á slæður
og sleipiefnagnótt
— ég slepp víst ekki í nótt.
Hendur hennar víðförlar
hár mín reisa skjótt.
Hún fer að engu óð
er öðru hverju góð
og vinnur verk sín hljóð.
Á meðan sem ég öskrandi
öll mín bundnu ljóð.

Ég veit að þessi lafði
með lostaböndin öll
er lygilega snjöll,
og launin, sem hún fær,
eru látlaus frygðarköll.
En útundan er sá,
sem aðra lætur smá
fullnægingu fá.
Fáir njóta eldanna,
sem fyrstir kveikja þá.
 
Sr. Hallgrímur Pétursson
Þú hefur mér fjölmarga fró sent
og fegurðinn streymir frá þér.
En þetta einasta prósent;
— ertu að fokka í mér?
 
Jónas Hallgrímsson
Tunguna má teygja að vild,
troðenni sem allra víðast.
Hún er fögur, hún er snilld
— hún er vöðvi, fyrst og síðast.
 
Jesús Kr. Jósepsson
Það var mikið. Þetta er nákvæmlega það sem ég er búinn að reyna að fá pabba til að innleiða í ég veit ekki hvað langan tíma. Fyrirgefning syndanna verður svo langtum, langtum skilvirkari þegar rafræm skilríki komast í notkun. Verstur andskotin samt að ég fékk enga leiðréttingu frekar en fyrri daginn.
 
Sr. Hallgrímur Pétursson
Tálgað hef ég innan úr mér
allt sem máli skiptir.
Einkum það sem anda lyftir.
Eftir standa eyðimerkur
yfirgefins huga.
En það verður víst að duga.
 
Jónas Hallgrímsson
Þar sem háir hælar
hálfan salinn fylla,
drósir börmum dilla
dúa leðurstólar
árla fyrir óttu
enn um miðja nóttu
mærin góða mer
mig í faðmi sér…
 
Jesús Kr. Jósepsson
Ókei. Sá næsti sem segir eitthvað hnyttið um krossfitt við mig í dag þarf að hafa ansi mikið fyrir himnaríkisvistinni.
 
     1, 2, 3 ... 45, 46, 47  
m.baggalutur.is Facebook Tvítill Tónlist.is iTunes YouTube Instagram RSS
Fréttir
Myglar – 24.04.23
 
Enter – 31.05.21
 
Enter – 22.10.20
 
Lesbók
Enter
 
Úr þjóðbók

Ég vissi það! Frændur okkar í Bretlandi hafa lengi vitað um líf á öðrum lífstjörnum. Og þeir hafa skrifað skýrslur um astrómekanísk farartæki og gert um þau hvurskyns nótasjónir. Sumt af þessu má skoða hér. En ég spyr: Hvar eru leyniskýrslur Bjarna Ben.? Við vitum öll að þær eru til. Fram í dagsljósið með þetta TAFARLAUST!

Við Gudda kíktum út að éta í gærkvöldi. Maturinn var ágætur sosum, ég fékk mér signa grásleppu á hvannjólabeði og Gudda fékk sér gufusoðnar lambalappir með púðursykurgljáðu skarfakáli. Ágætismatur alveg. Allavega - svo fengum við reikninginn og þá rak mig í rogastans. Tólf krónur fyrir signa grásleppu og sjö krónur og 13 aura fyrir lambalappirnar! Þetta er náttúrulega galið. Sérstaklega í ljós þess að náunginn sem afgreiddi okkur var einhver fjandans útlendingssauður sem ekkert virtist skilja- sennilega kominn hingað frá ...

Sjaldnast hef ég aura átt
í eignasafni mínu.
Aldrei gargað himinhátt
um heimsins kvöl og pínu.
Lifað hef í hljóðri sátt
á helst til þröngri dýnu.
Hlustað á hvern hjartans slátt
sem hlær í brjósti þínu.

Baggalútur er hýstur af alúð og umhyggju hjá ADVANIA