Þjóðbók
E. Aaron Presley
elliprelli.gracelandblog.us
Hafið þið prófað að syngja hartbreikhótel með munninn fullan af mæjónesi? Sjúklega fyndið.
E. Aaron Presley
Sullaði hnetusmjörsbananavalíumsjeik yfir pallíettunáttfötin mín! Hjálp - einhver!
 
E. Aaron Presley
Ahaha! Ohoho! Úmm jei - æmólsjúkopp!
 
E. Aaron Presley
Gallon af rjómaís. Stór krukka af hlynsýrópi. Hálft kíló af muldum salthentum. 8 stór snikkers/mörs, niðurskorin. 4-12 muldar íbúfen (eftir smekk). Öllu hrært vel saman. Djúpsteikt. Hrært aftur. Drukkið úr háu glasi.

Sumum finnst gott að hafa sellerístöngul með þessu. Upp á hollustuna.
 
E. Aaron Presley
Auglýsi hérmeð eftir góðu húsráði til að ná hnetusmjöri úr börtum. Sumir segja að maður eigi ekki að baða sig upp úr hnetusmjöri - maður eigi bara að borða það. En þetta er bara það eina sem ég leyfi mér.
 
E. Aaron Presley
Hver hefði trúað því að djúpsteikt pylsubrauð með hnetusmjöri og hlynsýrópi færu svona vel með snikkerssmúðí? Alltaf lærir maður eitthvað nýtt. Újebeibí!
 
m.baggalutur.is Facebook Tvítill Tónlist.is iTunes YouTube Instagram RSS
Fréttir
Myglar – 24.04.23
 
Enter – 31.05.21
 
Enter – 22.10.20
 
Lesbók
Enter
 
Úr þjóðbók

Æ hvað ég vildi að menn hættu nú að karpa þetta um borgarmálin sínkt og heilagt. Menn ættu heldur að líta út um glugga og horfa yfir á borgina okkar dásamlega fögru og yndislegu - og þakka guði, forsjóninni og öllu þeirra hyski fyrir að búa ekki í moðerfokking Garðabænum.

Fallin er nú freyja, slæm í baki.
Fegurst kvenna, dýrðlegt stjörnublys.
Þó værún tæpra átta manna maki.
myndavélin heitast unni Liz.

Jæja. Þá er kjepz tilbúinn með nýjan 180 erinda kvæðabálk - frá þeim sömu og færðu ykkur Tímann og vatnið, stútfullan af aukaefni. Get bara ómögulega ákveðið hvort hann á að heita 'Blúbbs!' Eða 'Plúbbs!'.

Baggalútur er hýstur af alúð og umhyggju hjá ADVANIA