Þjóðbók
Ingólfur Arnarson
golli.norwaysucks.se
Get ekki varist því að velta því fyrir mér hvað hefði gerst ef við hefðum ekki misst bannsett apabúrið í sjóinn á leiðinni hingað.
Ingólfur Arnarson
Skrambinn, ef ég hefði nú bara tekið stefnuna á Kepler 22b í staðinn fyrir þetta volaða skítasker. Þá værum við þar núna í góðu flippi í brakandi blíðu.

Að því gefnu reyndar að knörrinn hefði náð ljóshraða, eða þar um bil.
 
Ingólfur Arnarson
Jæja. Það hafðist. Er loksins búinn að finna annað land fyrir okkur. Voða lítið og sætt. Með mörgæsum og rennandi vatni.

En svo er ég hættur þessu rugli. Og ég brjálast ef þið rústið þessu líka.
 
Ingólfur Arnarson
...það minnir mig á það, ég skulda þeim ennþá pening.
 
Ingólfur Arnarson
Kæru Borgaryfirvöld. Svo það sé á hreinu. Þið getið troðið þessari ísmökuðu hjólabrettageymslu upp í tambórínuna á ykkur mér að sársaukalausu. Steingerði grænþörungurinn á Arnarhóli er feykinóg fyrir mig.
 
Ingólfur Arnarson
Ef hún Eva fer
ég ætla mér
að finna okkur annað sker
sem enginn sér.
 
Ingólfur Arnarson
Sko. Þetta er mjög einfalt. Ef þið viljið losna við allt þetta kvabb og tuð þá finnið þið ykkur bara eyju. Því sem næst óbyggða. Og hirðið hana. Byrjið svo upp á nýtt.

Trúið mér. Þetta svínvirkar.

Það er ekki eins og þið séuð fyrstu útrásarvíkingarnir.
 
Ingólfur Arnarson
Fari það í hlandblautan Heimdall og mæður hans margfaldar. Ætla nú þessir sísnuðrandi fornminjamerðir að færa landnámið mitt til ársins 720!. Ef þeir eru að vitna til þessara sólþurrkuðu egyptablesa sem voru hér að væflast þá get ég fullvissað menn um að það var ekki alvöru landnám. Þeir voru ekki hálfnaðir með þessar píramídalufsur sínar þegar við slátruðum þeim og skoluðum á haf út.
 
Ingólfur Arnarson
Nú er nóg komið. Hingað og ekki lengra. Ef ég finn ekki nýtt land í þessari viku þá hætti ég þessu rugli og skrái mig á atvinnuleysisbætur.
 
Ingólfur Arnarson
Frábært. Þá er maður endanlega hættur að fá að ríða út á að hafa fundið Ísland – meir að segja hér í Manitoba. Takk fyrir það útrásarfávitar.
 
Ingólfur Arnarson
Svei mér þá. Af hverju drullaðist ég ekki suður á bóginn meðan ég hafði tækifæri til? Eins og mamma sagði mér að gera.

Helvítis klúður.
 
Ingólfur Arnarson
Jæja, þá er þetta ævintýri búið.

Ojæja, þetta átti hvorteðer bara að vera pissustopp.
 
m.baggalutur.is Facebook Tvítill Tónlist.is iTunes YouTube Instagram RSS
Fréttir
Myglar – 24.04.23
 
Enter – 31.05.21
 
Enter – 22.10.20
 
Lesbók
Enter
 
Úr þjóðbók

Þrjóta nú óðum þjóðar gæði
þurrir krónu brunnar.
Þó leynist í sjóðum lítilræði
til leyniþjónustunnar.

Svei mér þá. Af hverju drullaðist ég ekki suður á bóginn meðan ég hafði tækifæri til? Eins og mamma sagði mér að gera.

Helvítis klúður.

Þó hér starfi þjóðþing elst
þá þykir mér það leitt;
ef ég kýs, þá kýs ég helst
að kjósa ekki neitt.

Baggalútur er hýstur af alúð og umhyggju hjá ADVANIA