Hvað á ég að þurfa að tyggja þetta oft ofaní menn? Líkaminn er stöð til að taka á móti magnan og senda frá sjer geisla. Lífið sjálft er þessi magnan eða hleðsla og utanaðkomandi kraftur tengir svo saman efni úr jörðunni til að búa líkamann skynjun og vitund.
Þetta er ekkert flókið.
Líf mitt allt er eilíf raun
í einni hrinu
því engin þigg eg ofurlaun
frá almættinu.
Ég er massasáttur við nýju þýðinguna á bókinni hans pabba. Allt annað en þetta uppskrúfaða torf sem var í gömlu útgáfunni. Það verður engum breytt í saltstólpa fyrir þetta, því get ég lofað. Helvíti fínt bara!