Mér barst þörf ábending um að nú sé kominn tími á duglega tiltekt á Gestapó. Það hafa hrúgast upp þræðir sem annað hvort eiga ekkert erindi þar sem þeir eru eða hreinlega þræðir sem má henda hið snarasta. Enn fremur var bent á þá staðreynd að starfandi friðargæsluliðar ættu að halda í höndina á nýliðum og benda þeim á misgjörðir sínar.
Dæmi eru um þræði sem eru tvíteknir og er helsta ástæðan sú að eitt sinn týndist grunnurinn að Gestapó og við urðum að gera allt upp á nýtt. Svo fann Enter grunninn og bætti honum við á ný.
Ég ætla að gera gangskör að því að læsa tvíteknum þráðum og held ég þeim opnum sem eru virkari. Séu þeir jafn virkir þá lifir sá eldri. Gott dæmi um svona þræði eru Spurt eftir svarið (leikur fyrir alvöru indjána) og síðan nýrri útgáfa sem heitir Spurt eftir svarið.
Nú er það svo að nokkrir friðargæsluliðar eru ekki lengur virkir og mun ég leggja það til við Enter að gæsluvöld verði tekin af þeim og öðrum, virkari Gestapóum veitt friðargæsluvöld í staðinn.
Ég mun enn fremur fara fram á það við Enter að friðargæslan fái þar til gert fundarherbergi þar sem hægt sé að varpa fram málum og ræða vandamál sem gætu verið of viðkvæm fyrir augu allra. Ekki er ég að reyna að stofna nýtt Gimlé heldur eingöngu að fá athvarf þar sem friðargæslan getur rætt málin án truflunar þeirra sem ekkert hafa með málið að gera.
Skipan friðargæsluliða er eftirfarandi í dag:
Almennt spjall
• Friðargæsluliðar: Hakuchi, Skabbi skrumari, Vladimir Fuckov, Vamban, Þarfagreinir, Isak Dinesen
Efst á baugi
• Friðargæsluliðar: Hakuchi, Skabbi skrumari, Vladimir Fuckov, Vamban, Þarfagreinir, Isak Dinesen
Vjer ánetjaðir
• Friðargæsluliðar: Vladimir Fuckov, Þarfagreinir, Isak Dinesen
Baggalútía
• Friðargæsluliðar: Vladimir Fuckov, Þarfagreinir, Isak Dinesen
Dægurmál, lágmenning og listir
• Friðargæsluliðar: Hakuchi, Isak Dinesen
Sögur, gátur, leikir og dægradvöl
• Friðargæsluliðar: Ívar Sívertsen, Sverfill Bergmann, Jóakim Aðalönd
Lygilega vinsælir leikir
• Friðargæsluliðar: Ívar Sívertsen, Sverfill Bergmann, Jóakim Aðalönd
Okkar málstaður
• Friðargæsluliðar: Ívar Sívertsen, Vladimir Fuckov, Þarfagreinir
Kveðist á
• Friðargæsluliðar: Skabbi skrumari, Barbapabbi, Z. Natan Ó. Jónatanz, Isak Dinesen
Fyrirspurnir
• Friðargæsluliðar: Ritstjórn
Vísindaakademía Baggalúts
• Friðargæsluliðar: Hakuchi, Vladimir Fuckov, Isak Dinesen
Umvandanir, ábendingar, tilmæli
• Friðargæsluliðar: Ritstjórn
Sorpminjasafnið
• Friðargæsluliði: Vladimir Fuckov
Undirheimar
• Friðargæsluliðar: Vladimir Fuckov, Þarfagreinir
Skipun friðargæsluliða hefur verið þannig frá upphafi að þeir sem hafa verið hér lengst og eru virkir fá þessi völd. Á þessum lista eru nokkrir sem ekki eru mikið virkir eða hreinlega alveg óvirkir og að mínu mati ekki hæfir sem friðargæsluliðar.
Þeir eru:
Hakuchi
Vamban
Isak Dinesen
Sverfill Bergmann
Jóakim Aðalönd
Barbapabbi
Einstaka sinnum hafa ákveðnir friðargæsluliðar farið í hrekkjastuð og breytt innleggjum og titlum þráða, því verður nú hætt nema óviðeigandi hlutir komi þar fram.
Svo vil ég að lokum benda nýliðum á að friðargæsluliðar áskilja sér allan rétt til að breyta eða eyða óviðeigandi innleggjum. Finnist notendum ekki farið að reglum eða að þræðir eigi ekki heima á ákveðnum svæðum skal snúa sér til friðargæsluliða viðeigandi svæðis.
Bestu hreinsunarkveðjur af Sívertsensetrinu
Hvernig væri svo að einhverjar konur væru skipaðar sem friðargæsluliðar?
Það skiptir ekki máli hvað hangir framan á friðargæsluliðum svo lengi að þeir séu starfi sínu vaxnir.
Það er því miður ekki hægt Krossgata. Það gæti líka orsakað að innlegg koma inn á milli sem enginn skilur neitt í.
Í sumum tilvikum... ekki öllum. Og þá þyrfti að fara gríðarleg vinna í það sem við Gestapóar nennum ekki að standa í!
Ég er algerlega lost þegar farið er að ræða kynferði gestapóa, hvernig þeir sé vaxnir, hvað hangi framan á þeim og svo virðist sem svokölluð innlegg hangi milli fóta sumra þeirra. Síðan eru þessu svokölluðu innlegg greinilega að þvælast þar sem þau eiga ekki að vera og er algerlega eins og festur upp á þráð þegar umræðan er á þessum nótum og ég skil ekkert.
Er hægt að fá botn í þessa umræðu? Er ekki meiri þörf á túlki eða afruglara en friðargæslu. Við Íslendingar höfum löngu sýnt það að við eigum ekkert að vera að sinna friðargæslu. Er ekki best að semja bara við NATO eða rauðu kmerana?
Þú værir nú örugglega alveg til í að prófa að vera lesbía ..
HEYR HEYR.
Mér finnst sumir hafa fengið fullmikil völd hér! Eru þetta pólitískar ráðningar?
Nei, hjer eru aldrei neinar pólítískar ráðningar [Býður Offara að ganga í Hreintrúarflokkinn svo hægt verði að láta hann fá eitthvert embætti].
Fleiri kellingar í frygðargæsluna.
Ef það er skortur á gæsluliðum, þá má senda lykilinn til mín, lofa að vera stilltur og hrekkja einstaklega lítið. Annars er svolítið svindl þegar gæslan er að hrekkja.
Puttasleikja, eða Pissustopp:
Ég verð ekkert sár þó ég fái ekki lykil.
Mér finst víst að ráða ættii kvenpóa í þau lausu störf sem til boðs eru ´kvenpóar eru mun greindari og betri á allan hátt
Það sem ég vildi hafa sagt er að það skiptir víst máli hvað friðargæsluliðinn sé með á milli lappana því hann er sá eini að mínu mati sem verður að hafa raunheimatengsl og þess vegna er það sjálfsagt að konurnar taki yfir. Baggalútíer bygt á feminístískum grunni Lifi Matrerkatið !
Er ekki rétt að stíga skrefið til fulls og ráða lesbíur í þau störf, sem laus eru. Þá yrði nú Enter ánægður.
Ég er nú á því að friðargæsluliðar eigi fyrst og fremst að passa að aðrir friðargæsluliðar (ekki síst þú) séu ekki með einhvern helvítis barnaskap og valdníðslu.
Láttu þá einhvern tímann sjá þig ellegar þegja. Bylur hæst í tómri tunnu.
þú hefur um leið misskilð hlutverkið. Friðargæslan sér um að passa að fólk fari ekki yfir strikið í orðavali eða gerir eitthvað rangt samkvæmt fyrirfram ákveðnum reglum.
Hafi ég orðið sekur um eitthvað sem kalla mætti valdníðslu þá hefur ekkert verið kvartað undan því og tel ég mig því ekki hafa misbeitt því litla valdi sem ég hef. Barnaskap skal ég alveg viðurkenna en ég stunda þó ekki ruddaskap eins og sumir!
Þetta var nú bara grín. Úff.
Annars hef ég alltaf verið á þeirri skoðun að ekki eigi að taka þetta of alvarlega og síst af öllu að "taka" of mikið "til". Fyrst og fremst skuli passa upp á að hér séu ekki einhverjir ruddar (verri en ég þá) að eyðileggja stemninguna með alvöru ruddaskap.
(Annars hef ég sterklega á tilfinningunni að ég yrði síðastur látinn hætta friðargæslustörfum, hversu utangátta sem ég kann að vera.)
Vjer erum sammála. Alls ekki að taka þetta of alvarlega og forðast of stórar 'tiltektir', þ.e. gera það sem þarf þegar upp kemur vesen - en ekki meira.
Það getur hinsvegar verið gaman af prakkaraskap einstaka sinnum (sem Ívar nefndi) - sje hann vel útfærður - en þar þarf að gæta þess vandlega að fara ekki yfir strikið og að gæta þess að skýrt sje hvað er á ferðinni.
Það skiptir líka kannski máli að það séu ekki alltaf sömu einstaklingarnir sem séu friðargæsluliðar allstaðar... því þeim mun fleiri sem eru friðargæsluliðar, því líklegra að einhver þeirra sé inni.
Lykilatriðið er (og nú held ég að ritstjórn sé sammála mér) að einhverjir misvitrir kjánar fari ekki að eyða út eða breyta snilld þeirri sem af og til villist hingað inn.
Það þarf líka að laga ölæðisinnlegg og ofsareiði ef farið er gróflega yfir strikið.
Annars mætti útfæra friðargæsluna þannig að það væri 10 aðilar í þeim hópi og þeir hefðu allir sama aðgang til að geta þá veitt öðrum aðhald.
Gaman væri að heyra frá ritstjórn um þetta hér.
Ég er þokkalega virkur og nokkuð virtur (að vettugi), ég á heimtingu á löggæslutitli. Núna, ef ekki strax. [Fleygir baun á borðið]
Ég var að vona að þetta rit væri til að láta fólk vita að þetta er ekki fésbókin.
[Fleygir mandarínubita á borðið] Hvað verður um dónakalla í svona hreinsunum? Hvernig hreinsanir er um að ræða? Vonandi ekki að kaþólskum sið?
Þetta er sennilega best ritskoðaði vefur landsins. Virkilega huggulegur, penn og sætur. Hér eru öllum steinum velt jafnharðan, allt skoðað og ekkert undanskilið. Ég mun mæla með því á ríkisráðsfundi á eftir að Gestapó verði þjóðnýtt. Þetta er módelið sem við þurfum.
Hafiði tekið eftir hvað það er alltaf hreint og fagurt á Kveðist á? [Mundar kústinn]... Skál
smá pælin .af hverju er það val - möguleiki að búa til þræði í lygilega vinsælum leikjum þegar það má ekki?
ég yrði örugglega langsætasti frygðargæsluliðinn og bestur í að leiðrétta stafsettninguna og að henda byttifyllunum út.
Æji ég veit það ekki. Held (persónulega, fyrst það bi(y eins og það ætti það vera)ndst ekki við annað). Verður embættum deilt út eftir kynjanöfnum eða raunheimakynjum? Kynngin er mörg og fátt ber að varast. Hver ert þú?
Þakka jeg að sjálfsögðu fyrir allar ábendingar í minn garð um hvernig betur mætti fara í gerð fjelagsrita.
Það væri flott ef einhverjir friðargæsluliðanna hjer færu þá að reyna að eyða einhverjum elstu innleggjanna hjerna , t.d. sumum af hinum vinsælu Úlfamannsinnleggjum og einhverju af gömlu sorpritunum.