Oft í gegnum tíðina hafa klassískir tónlistarmenn reynt að gera popp og rokk en með afar misjöfnum árangri. Cynic Guru er svoleiðis.
ÉG komst yfir eintak af diskinum Iceland með Cynic Guru á dögunum. Þessi hljómsveit samanstendur af forsprakkanum Rolant Hartwell sem er heilinn á bak við þessa sveit, hann spilar á eiginlega allt nema trommur og trompet. Hann er fiðluleikari í Sinfóníuhljómsveit Íslands. Næstur er það Richard Korn, bassaleikari sem spilar á kontrabassa í sinfó... Svo er það maður að nafni John Mono sem ég kann eiginlega engin frekari skil á nema hvað hann spilar á hljómborð. Síðan eru það íslendingarnir Óli „Ný-danskur“ Hólm trommari og Einar Jóhannsson gítarleikari sem ég á eftir að afla mér upplýsinga um.
Lögin á þessari plötu eru af ýmsum toga en þau falla saman í mjög sterka heild. Lögin eru grípandi og gríðarlega lífseig þrátt fyrir það. (Mín reynsla er nefnilega sú að yfirleitt eru lög ekki lífseig þegar þau eru grípandi) Roland Hartwell er gríðarlega flinkur fiðluleikari og mjög útsjónarsamur í útsetningum. Eins og gefur að skilja þá eru fiðlur áberandi í flestum lögum en þó nær hann samt að láta þær falla þétt að öðru undirspili. Á köflum finnst mér strengjaundirspilið jafnvel líkjast því sem Seal hefur gert og finnst mér það plús. Roland hefur sterka en svolítið viðkvæma rödd. En röddin er flott. Allar bakraddir falla vel að söngnum og gerir hann ýmsar skemmtilegar tilraunir í þá veruna sem heppnast fullkomnlega. Ef ég vissi ekkert um þessa sveit og væri að heyra lögin í fyrsta sinn þá hefði ég líklega haldið að þarna væri band sem hefði spilað saman í 20 ár án þess að taka sér frí, þvílíkur er þéttleikinn.
Gagnrýnandi Rásar 2, Andrea Jónsdóttir, fullyrti að hér væri komin ný bítlaplata. Ég er henni fyllilega sammála og ég er líka sammála henni um að lagið Drugs er lag ársins. Það er samt erfitt að pikka eitthvað eitt lag út en Drugs er einfaldlega flottasta lag plötunnar.
Það verður gaman að fylgjast með Cynic Guru í framhaldinu.
Takk fyrir þetta. Ég hef einmitt heyrt lagið Drugs og finnst það æði en var ekki viss um hvort ég ætti að tékka eitthvað meira á þessu bandi en samkvæmt þessum skrifum verð ég greinilega að gera það.
Tja, það skyldi þó ekki vera að ég reyndi að komast yfir plötuna og hlusta á.
Cynic Guru, skilur Riddarinn ekki rétt að um frekar nýlegt band sé að ræða, hvað er þetta band gamalt..?..
.
Þú talar um að komast yfir diskinn, er hann þá ekki kominn í almenna sölu..?..
.
Þakka þér fyrir þessa gagnrýni Ívar, þetta virðist vera mjög áhugavert band svo að ekki sé nú meira sagt.
Ég hef ætlað að hlusta á þetta í svoldinn tíma, kannski ég láti verða af því núna.
Vjer athugum þetta, takk fyrir það kæri Ívar.
En eitt skil ég ekki, Komast yfir diskinn ?
Er Hexía ekki nóg ? [verður forviða]