Ágæta samkoma. VIð jól hefur æringinn Ívar Sívertsen oftar en ekki hent í svo sem eitt jólalag.
Þessi jólin hefur galgopinn Ívar verið mjög upptekinn við að sinna raunheimamálum og að hylja slóð sína. Jólalagið verður því miður svolítið seint þetta árið en það kemur, trúið mér. Ég reyndar er búinn að semja það og útsetja og ráða listamann til að sinna sólókafla þar sem ég sökka í sólóum.
Á meðan þið bíðið getið þið ornað ykkur við jólalag 2006
Just you wait and see!!!!
Prýðilegt lag. Og já sjónvarpsborðið þjónar hlutverki sínu afar vel, nú get ég hent ljótu kommóðunni á haugana.