— GESTAPÓ —
Í uppáhaldi:
Félagsrit:
Ívar Sívertsen
Friðargæsluliði.
Heiðursgestur og  skáldjöfur.
Pistlingur - 4/12/05
Glottir eins og fífl

Nú er sko mál að linni! Hvað í froðufellandi flókaskóm er með þatta ungpólitíska lið? Þessir fábjánar í Sjálfhælnisflokknum (og þá er ég að tala um barnadeildina) eru búnir að opna kosningaskrifstofu!

Er ekki nóg að flokkurinn sjálfur opni skrifstofu? Greinilega ekki. Kapítalískir demókratar (vöggustofan) hefur nú opnað kosningaskrifstofu niðrí bæ og fara ekkert sérstaklega laumupúkalega með það. Ungir áhugamenn um stjórnmál hafa tilhneygingu til þess að vera öfgakenndari en móðurflokkurinn og hafa ályktanir þeirra oftar en ekki verið mjög ýktar og beinlínis fáránlegar, sem reyndar er svolítið fyndið í tilfelli framsóknarflokksins... öfgakenndir tækifærissinnar...

En hvað um það. Sem sagt, bleyjubossarnir í stuttbuxnaflokknum opnuðu þessa kosningavöggustofu með hávaða og látum og kynntu um leið kosningamerki ungra pelabarna í sjálfgræðisflokknum. Merki þetta myndi útleggjast hér á Gestapó sem ‹Glottir eins og fífl› en mynd náðist af merkinu. Viðkvæmum skal bent á að byrgja augu sín rétt á meðan horft er framhjá myndinni.


Ég held að það væri þjóðráð að við Gestapóar færum nú á þessa skrifstofu, breyttum þessu eins og það á að vera, þ.e.a.s. ‹Glottir eins og fífl›, því það hæfir þessum sandétandi stjórnmálapúkum betur. Mér er slétt sama hvort um væri að ræða unga örfhenta, unga framagosa, unga samfarendur eða unga frelsishefta. Auðvitað er þetta bara afsökun til þess að fá sér í glas og er það gott en þegar glösin verða of mörg þá er það held ég barasta ekkert gott! Þá verða menn svo öfgakenndir... ‹glottir að tvíræðni orðsins öfgakenndir›

Meira síðar!

   (134 af 287)  
4/12/05 20:01

Limbri

Ertu að reyna að starta fylleríi hérna?

-

4/12/05 20:01

Heiðglyrnir

Já sammála Ívar..,Þetta er vel að verki staðið hjá stuttbuxna strákunum...Já og við gætum nú aldeilis kennt þeim að skipta út brosköllunum fyrir sviðskipanir...Úje..það væri nú strax framför...Síðan gætum við jafnvel kennt þeim að uppnefna allt og alla, það væri sniðugt... Jahérnahér hvað þetta verður gaman.

4/12/05 20:01

Ívar Sívertsen

Jáhhá... mér finnst bara þetta bleyjubrókarlið eigi að eyða kröftunum með þeim sem virkilega standa í framlínunni heldur en að vera með einhvern svona fíflagang...

4/12/05 20:01

Heiðglyrnir

Var þetta ekki örugglega í Austurstrætinu nr.6 og byrjaði kl 20:00 í kvöld...Fríar veitingar, tónlist og fíflagangur...Jahérnahér maður kíkir kannski..!..

4/12/05 20:01

Ívar Sívertsen

Heyrðu... þú segir nokkuð... það væri gama... nei annars... ég þarf að taka til í sokkaskúffunni minni...

4/12/05 20:01

Heiðglyrnir

Hmmm...Jújú heyrt um sokkana þína Ívar minn...Menn gera ýmislegt til að komast í vímu...Ef að þér er sama þá, langar mig nú meira niður í bæ sko hmmm..!..

4/12/05 20:01

Ívar Sívertsen

Nú? Ætlarðu þá ekki að hjálpa mér með sokkana?

4/12/05 20:01

Heiðglyrnir

Neiskoekkinúna-Ívarminn-Kannskiseinna-sjáumst..[reynir að hugsa um e-ð annað] [gerist Sjálfstæðismaður til að gleyma] [Sendir Ívari þakkarskeyti fyrir milligöngu hans í málinu] [Meðfylgjandi er fálkaorðan frá stjórn flokksins fyrir þrotlaust og óeigingjarnt kynningarstarf Ívars í þágu Sjáfstæðisflokksins] tissssssh.

4/12/05 20:01

Ívar Sívertsen

[spilar á trommurnar með Heilglyrni]

4/12/05 20:01

hlewagastiR

Það er gott að ungt fólk geri sig gildandi í stjórnmálum og láti til sín taka, hvar í flokki sem það stendur.

Lýðræðið byggist á því að ná til fjöldans og nota með því það samskipta- og táknkerfi sem fjöldanum þóknast.

Við megum nú ekki gleyma því að við, fastagestirnir á Lútnum, erum ekki venjulegt fólk. Menn þurfa ekki að lesa lengi til að sjá að eru samansafn sérvitrunga og furðufugla. Við erum á hliðarlínu mannlífsins. Við erum ekki eins og hin. Við stingum í stúf. Við stökkvum í strætó. Við stuðlum. Við segjum ekki
<font size=7>: D</font>
eins og venjulegt fólk heldur
<font size=5>[glottum eins og fífl]</font>

Niðurstaða: Það erum við en ekki ungliðarnir sem erum klikk. Það erum við sem erum utangarðs. En við erum auðvitað miklu gáfaðra, skemmtilegra og áhugaverðara fólk. Þau eru kannski fallegri, enn ekkert umfram það.

4/12/05 20:01

Galdrameistarinn

Heyrðu handklæðahausinn þinn? Við erum náttúrulega langbest, gáfuðust og flottust hvað sem öllu líður og það sem meira er, við klikkum ekki þegar á hólminn er komið eins og allur lýðurinn sem Ibbi Sybbi telur upp hér að ofan.

4/12/05 20:01

Nermal

Ég er nú fallegri en hvaða sjálfstæðismaður sem er. Mér finnst að við bagglýtingar ættum að bjóða okkur framm til þings við næstu kosningar. Ég legg til listabókstafin X... Settu X við X

4/12/05 20:01

Limbri

Við myndum auðvitað taka yfir B-ið. B fyrir Baggalútur.

Það getur ekki verið of slæmur stafur, hann er jú forsætisráðherra kallinn sem á þann staf núna á sínum flokk.

-

4/12/05 20:01

Hexia de Trix

Er ekki G-ið laust? Man nokkur hvorteðer fyrir hvað það stóð hér í denn? Við þurfum auðvitað að fá G fyrir Gestapó!

4/12/05 20:01

Haraldur Austmann

A

4/12/05 20:01

Ívar Sívertsen

Í er minn stafur! X-Í

4/12/05 21:00

Upprifinn

tvípunktur stórt d. afsakið meðan ég æli.

4/12/05 21:02

Jóakim Aðalönd

[Glottir eins og fífl]

Ívar Sívertsen:
  • Fæðing hér: 11/8/03 12:21
  • Síðast á ferli: 22/6/23 12:25
  • Innlegg: 12356
Eðli:
Ákaflega fagur ungur maður með mikinn metnað og kann sig á allan hátt. (hann lærði það á kvöldnámskeiði hjá Bréfaskóla SÍS)
Fræðasvið:
Ég veit allt, get allt og kann allt en fer rosalega leynt með það og kann að fela það vel.
Æviágrip:
[i]Fæddur að handraðanesi á sóðbrókarströnd í Ristilfirði. Lést skömmu síðar. Reis upp frá dauðum eftir korter og bað um brauð. Eftir það var ekki aftur snúið. Hann hefur síðan verið ánetjaður Baggalúti og virðist ekkert vera að skána.Hann fékk sér fæðingarblett á kinnina skömmu áður en hann lét taka hann af sér. Hann hló skömmu eftir það. Ívar hefur nú hafið búskap á Eyðibýli á Auðkúluheiði. Hann hefur aldrei verið við kvenmann kenndur en hann er all oft kenndur. Sívertsenættin hefur lýst hann útlægan og krafist þess að hann afsali sér ættarnafninu og taki upp nafnið Nestrevís en hann hefur margsinnis hafnað því. Ef þú ert að lesa þetta ennþá þá ert þú líklega jafn skemmdur og Ívar... ef ekki skemmdari barasta. Ertu enn að lesa? Nei nú læt ég leggja þig inn á geðdeild! Það er ekki heilbrigt að lesa svona langt! Viltu hætta þessu! HÆTTU SEGI ÉG!!! Ef þú ert enn að lesa og finnur ekki fyrri vott af þreytu þá skal því bætt við að þegar Gestapó var opnað í árdaga þá gerðist Ívar fastagestur hið snarasta. Hann hefur æ síðan verið einn virkasti gestapóinn og ritað mikið. Hins vegar er ljóst að hann kemur til með að auka viðveru sína á Gestapó á komandi árum því nú hefur hann komið sér í innivinnu við tölvu. Ertu enn að lesa þetta? ÉG held svei mér að þú ættir í alvöru að leita þér hjálpar. Ég er löngu hættur að lesa þetta... ég veit ekki einu sinni hvað stendur eftir línu þrjú. En hvað um það. Síðan hafa mörg vötn runnið til sjávar og eiginlega svo mikið að það er ekkert salt eftir í sjónum, það lagði á flótta upp í ár og stöðuvötn þannig að nú er sjórinn pakkfullur af ferskvatnsfiskum og ferskvatnshvölum. En það bar til um þessar mundir, að boð kom frá Megasi keisara, að skrásetja skyldi alla drykkina. Þetta var fyrsta skrásetningin og var gjörð þá er Gylfi Ægisson var blandstjóri í Stúdjó Sýrlandi. Fóru þá allir til að láta stjaksetja sig, hver til sinnar borgar. Þá fór og Rúnar Þór úr Litlu Hraunum frá Hótel Borg upp í Morgunblaðshús, til borgar Davíðs, sem heitir Hádegismóar, en hann var af ætt og kyni Davíðs,að láta skrásetja sig ásamt Maríu hjákonu sinni, sem var þung. En meðan þau voru þar, kom sá tími, er hún skyldi verða léttari. Ældi hún þá bjór sinn frumdrukkinn, sagði hann vondan og lagði hann í fötu, af því að eigi var romm handa þeim í gistihúsi. En í sömu byggð voru barþjónar úti í haga og gættu um nóttina drykkja sinna.Og vörður laganna stóð hjá þeim, og dýrð Áfengis ljómaði kringum þá. Þeir urðu mjög fullir, en löggimann sagði við þá: Verið óhræddir, því sjá, ég boða yður mikinn fögnuð, sem veitast mun öllum lýðnum: Yður er í dag afréttari færður, sem er Hristur og hrærðu, í Mogga Davíðs.Og hafið þetta til marks: Þér munuð finna gubb vont, lagt í fötu. Og í sömu svipan var með löggumanninum fjöldi himneskra hljómsveita, sem lofuðu stuð og sögðu: Dýrð sé stuði í Hádegismóum, og fiður á Davíð og mönnum sem hann hefur velþóknun á. Þannig hljóðar hið heilaga stuðspjall. Og þegiðu svo!