Blámannaklíkan hefur tögl og haldir í undirheimum þar sem ekkert rautt á lit virðist geta ógnað henni.
Í undirheimum er það helst í fréttum að ný ógn tröllríður öllu á götum Baggalútíu. Bláa Ógnin eins og hún er oft kölluð, eða betur þekkt sem Blámannaklíkan, virðist geta gert það sem hún vill. Allir Blámenn Baggalútíu verða seint sakaðir um fjársvik.
Lifi Bláa Ógnin!
Ég vil bara minna þig á það Leibbi að Bláa Ógnin hefur töglin og hagldirnar (ef ég man þetta rétt).
Þið munið alldrei yfirbuga klassíska blæinn né hinn eðalgræna lit. ALLDREI!
Ég hef ekkerrt á móti ykkur. Það eru þessir rauðu sem fara í ónotin á mér.
Græningjar, gularar, Brúnmenn, bleiknefjar, og fleiri ágætir. Ekkert er við ykkur að sakast. En um Rauðingjana gildir allt annað lögmál.