— GESTAPÓ —
Vamban
Friðargæsluliði.
Fastagestur.
Sálmur - 2/12/11
Um form þjóðar

Ort í tilefni fréttar þess efnis að nokkrir framtakssamir ungir menn ætla að koma þjóðinni, sem þykir með þeim búlduleitari, í einhverskonar form.

Hunsar þjóðin hin holdlegu norm
hjúpuð er sultu og spekki
Á hlussur nú herjum og komum í form
en hringlaga er það víst ekki

   (2 af 31)  
2/12/11 21:01

Golíat

Ertu þá lifandi enn Vamban?

2/12/11 22:01

Vamban

Það fer allt eftir kóbaltmagninu í Admiralnum.

2/12/11 23:01

Huxi

Haha... Þetta kætti mig. Skál höfðingi.

Vamban:
  • Fæðing hér: 7/4/04 18:30
  • Síðast á ferli: 28/6/22 15:34
  • Innlegg: 191
Eðli:
Landbúnaðarráðherra. Hirðstjóri og yfirsmakkari. Fjármálastjóri Hreintrúarflokksins.
Fræðasvið:
Admiral, mútuþægni, spilling, kvennafar og kóbaltbæting landbúnaðarafurða.
Æviágrip:
Stórmyndarlegur og hefur alltaf verið það.