— GESTAPÓ —
Vamban
Friðargæsluliði.
Fastagestur.
Dagbók - 2/11/08
Twitter athvarf

Ég vil kunngera að ég hef hér með hafið útrás mína á vegum Landbúnaðarráðuneytisins og pönkhljómsveitarinnar Eyðublað Nr. 566 yfir á vefþjónustuna Twitter. Þeir sem tól þetta brúka eru beðnir um að beina vöfrum sínum á slóðina http://twitter.com/admiralsafi og hanga þar á hverju einasta orði sem frá mér kemur.

Skál!

   (5 af 31)  
2/11/08 10:01

hvurslags

Þetta fuglatíst Vömbunnar mun vonandi hækka standard síðunnar. Shitmydadsays mun þó áfram tróna á toppnum sem skemmtilegasta tístið á þessari annars undarlegu síðu,

2/11/08 10:01

Grágrímur

Ég fatta ekki tístið... þetta er eins og Smettisskruddan mínus allt... sem er stór plús á sinn hátt.

[fer aftur inn í torfkofann sinn og heldur áfram að vera gamaldags...]

2/11/08 10:01

Golíat

Góður Grágrímur. Ég forðast líka allt sem tilkomið er eftir siðaskipti.

2/11/08 10:02

Miniar

Ætli ég elti þig ekki bara þarna á tístinu, en ég nenni ekki að þíða öll mín píp nema íslenskir fylgjendur mínir telji þriðjung allra minna fylgjenda, þannig að ef þú fylgist með mér til baka þá þíðir ekkert að búast við öðru en enskunni frá mér.

2/11/08 10:02

Blöndungur

Hvað er þetta Twitter?

2/11/08 10:02

Jóakim Aðalönd

Eyddu þessu óriti nú þegar! Við erum búin að sýna þér umburðarlyndi allengi, en nú er nóg komið af svona bloggfærzlum þar sem þú ert að hauglýsa sjálfan þig!

2/11/08 11:00

Vamban

Hvaða væl er þetta kerling?

2/11/08 12:00

Jóakim Aðalönd

Flokkast þetta sem væl í þín eyru?! Þú ættir þá að leita til eyrnalæknis vinurinn, eða skilurðu ekki fyrr en skellur í goggi?

Vamban:
  • Fæðing hér: 7/4/04 18:30
  • Síðast á ferli: 28/6/22 15:34
  • Innlegg: 191
Eðli:
Landbúnaðarráðherra. Hirðstjóri og yfirsmakkari. Fjármálastjóri Hreintrúarflokksins.
Fræðasvið:
Admiral, mútuþægni, spilling, kvennafar og kóbaltbæting landbúnaðarafurða.
Æviágrip:
Stórmyndarlegur og hefur alltaf verið það.