— GESTAPÓ —
Vamban
Friðargæsluliði.
Fastagestur.
Dagbók - 10/12/06
Ímyndið ykkur

...Jesús í Örlagadeginum hjá Sirry. Ja eða Hitler í Innlit Útlit? Hvað með Ghandi í Biggest Loser eða Liberace í Allt í Drasli?

Bara pæling.

Eitt er þó víst að Castro myndi vinna Survivor.

   (20 af 31)  
10/12/06 05:01

Ívar Sívertsen

Já... eða Randver í Spaugstofunni...

10/12/06 05:01

krossgata

Enn hefur ekki verið reynt að ræða við mig í Örlagadeginum og hef ég þó lent í steypiregni á leiðinni út í búð... bíllaus.

10/12/06 05:01

Anna Panna

Jösös minn, ég lenti nú í því að það sprakk hjá mér og það... [á innsoginu] það stoppaði enginn til að hjálpa mér... [fær tár í augun og pantar áfallahjálp]

Hvað ætli Margret Thatcher kæmist langt í So you think you can dance?

10/12/06 06:00

Hakuchi

Ég get það ekki. Ég glataði ímyndunaraflinu eftir fyrstu seríuna af Friends.

Vamban:
  • Fæðing hér: 7/4/04 18:30
  • Síðast á ferli: 28/6/22 15:34
  • Innlegg: 191
Eðli:
Landbúnaðarráðherra. Hirðstjóri og yfirsmakkari. Fjármálastjóri Hreintrúarflokksins.
Fræðasvið:
Admiral, mútuþægni, spilling, kvennafar og kóbaltbæting landbúnaðarafurða.
Æviágrip:
Stórmyndarlegur og hefur alltaf verið það.