Afnám afnotagjalda, það var "nef"nilega það!
Planið er að taka upp nefskatt, satt best að segja næ ég varla upp í nef mér af bræði. Þetta tel ég afleita og afar ósanngjarna leið til að skattleggja landann. Vel flestir hafa sitt eigið nef, og nef eru mis stór. Þannig greiðir sá er lítið nef hefur hlutfallslega hærri skatt en sá er stórt nef ber. Síðan á að tekjutengja þetta, þ.e.a.s. allir sem ná ákveðnum tekjum borga einn nefskatt. Ehhh... en hvað ef maður hefur t.d. atvinnu af nefinu? Eins og vínsmakkarar eða nef módel? Ættu þeir ekki að greiða hærri nef skatt?
Mér finnst nefskattlagning þessi hörmuleg og sé mér ekki fært að spandera stjörnu á hana.
Ps. Ég er enn að bíða eftir að geta gefið minna en enga stjörnu.
Nefskattur getur vissulega komið mishart niður á mönnum eftir andlitsfalli. En það ræðst svo aftur af því hversu loðnir menn eru um lófana. Oft fer þetta saman.
Ekki er þetta nú í fyrsta skipti sem að rignir upp í nefnið á þessum ríkisbubbum.
æji, troddu þessari stjörnu upp í nefið á þér.
Já eða troddu þessu nefi upp í stjörnuna á þér.