— GESTAPÓ —
Í uppáhaldi:
Félagsrit:
albin
Heiðursgestur og  skriffinnur.
Gagnrýni - 4/12/04
Eins og belja á svelli

Einkennilegt og stórhættulegt sport

Mér varð ansi hált á svellinu í dag þegar ég fór með unga dóttur mína á skauta í skautahöllini. Fannst mér umhirða á athafnasvæði því er til skautaiðkunar er ætlað vera til skammar. Það var flughált og stórhættulegt. Hvorki sand né saltborið í þessari hĺku, og er það sérstaklega hættulegt þar sem kautar eru illa hannaðir til gönguferða um svo hál svæði, mannbroddar henta mun betur. En við sluppum þó heim aftur heil og óbrotin og er það fyrir mestu. Þrátt fyrir miklar hættur var merkilega mikil skemtan af athæfinu, og stemming nokkuð góð. Lýsing og tónlist var þó eitthvað til að draga athygli frá hálku og öðrum hættum.
Þrátt fyrir gáleysislega dauðagildru gef ég þessari afþreyingu 4 stjörnur, því dóttirin var al sæl, og ég alsæll að sleppa lifandi.

   (48 af 62)  
4/12/04 16:02

Smábaggi

Einkennilegt að sjá hlut sem fær svona slæma umsögn fá svona margar stjörnur.

4/12/04 17:00

albin

Já, það fannst mér líka

4/12/04 17:00

Skabbi skrumari

Góður pabbi... skál...

4/12/04 17:00

Vímus

Þá veit ég hver þú ert. Ég sá aðeins einn mann detta. Var þetta svona rosalega sárt eða sendir þú þetta hroðalega öskur frá þér vegna reiði?

4/12/04 17:00

albin

Trúðu mér, það er vont að detta!

4/12/04 17:00

moni

4/12/04 17:00

moni

ég fór í keiluhöllina í dag það var mjög gaman sonurinn var mjög sáttur í spilakassanum.við borðuðum hamborga

4/12/04 17:00

Skabbi skrumari

Hvah... eru menn hættir að fara bryggjurúnt á pabbahelgum?

4/12/04 17:00

albin

Það er nottla klassískt...

4/12/04 17:01

Limbri

Bryggjurúnt og stoppa svo aðeins á verkstæðinu til að sækja einhvurt rafmagnstækið. Reyna að vekja ahuga sonarins á vélum og tækjum. Mamman og þessi karlræfill sem hún er með núna eru að breyta drengnum í metró. Helgarpabbar fara með drenginn í Metró.

-

4/12/04 17:01

Ívar Sívertsen

iss... ég er sko allradagapabbi og sendi dætur mínar bara inn í herbergi... ég er eiginlega svona fréttapabbi...

4/12/04 18:02

Ísdrottningin

Ég fór bryggjurúnt um helgina,
en ég er bara ekki pabbi...

albin:
  • Fæðing hér: 11/8/03 11:19
  • Síðast á ferli: 16/12/23 09:55
  • Innlegg: 3545
Fræðasvið:
Sjálfmenntaður í ScrewDriver... sem er eftirlætis svaladrykkurinn, en drekk þó ekki nærri nóg af honum. Ég hef víðtæka þekkingu á skotvopnum ætluðum til verka á lengra færi sem og í návígi.
Æviágrip:
Ég hef alla tíð verið þorpari, fól og fantur.