Heldur þykir mér ótrúverðugt þegar stjórnmálamenn tala fjálglega um alheimskreppu. Þegar vetrarbrautin okkar skilaði 515 grilljón sjörnudúkarta methagnaði á síðasta ársfjórðungi (m.v. við meðalár innan brautarinnar).
Nær lagi væri að tala um sólkerfiskreppu (jafnvel þó rúm 70 ár séu í að Plútverjar skili næstu ársskýrslu).
Ég hef verið hafður að ginningarfífli! Verið fíflaður og prettaður! Er búinn að vera í frábæru gerkosmísku sambandi við lífveru sem ég þóttist sannlega sannfærður um að væri af annarri lífstjörnu, svo langt frá öllum okkar veruleika var hún í hugsun og hátterni. Svo reyndist þetta bara vera einhver skrifstofublók úr einni skilanefndinni.
Svei mér þá. Ég sem ætlaði að byrja að mála tímamótaflenni-málverk af Seðlabankanum í dag, jafnvel heila seríu – og þá er bara allur svarti liturinn uppseldur í bænum.
Ojæja. Þá eru það bara Þingvellir og meira hraun.