— GESTAPÓ —
Anar
Nýgræðingur.
Pistlingur - 10/12/04
Gítarsyndir.

~Popplag í G-dúr~

Nú er ég að æfa vinnukonugripin. Var næstum gripinn í eitt skiptið. Það hefði verið vandræðalegt. Vandræðin gera ekki boð á undan sér. Sér í lagi ekki ef ætlunin er að fela athöfnina. Ég fel vinnufélögunum oft mín verkefni. Það slakar á mér. Ég fer í nudd til að slaka á eftir allt ruglið. Það kostar pening. Sem skapar stress. Sem skapar þörf á nuddi. Vildi að konan mín hætti þessu eilífa nuddi. Hún gæti eytt meiri tíma í heimilisstörfin. Og þá þyrftum við ekki vinnukonu. Og þá væri ekki hætta á að ég yrði gripinn við að grípa í vinnukonuna.

~Saurugum hugsunum má skola burt með vodka~

   (5 af 11)  
10/12/04 05:02

Heiðglyrnir

Aldeilis magnað Anar minn.

10/12/04 05:02

Leir Hnoðdal

Já Anar er þetta ekki merkilegt hvað allt fer í hringi. Þú hlítur nú að meiga klípa að eins í vinnukonuna...erðaikki ?

10/12/04 05:02

blóðugt

Hvað gerist svo þegar þú ferð í þvergripin?

10/12/04 06:00

Sundlaugur Vatne

Já, gítar syndir. Það geri ég líka.

10/12/04 06:01

Vímus

Ég álít þig einstakan gæðagrip.

10/12/04 06:01

Alvitur asnastrik

Menn eru helvíti flinkir í orðaleikjunum.

31/10/04 01:01

Doofus Fogh Andersen

Af hverju þurfa konur að nudda í mönnum í stað þess að nudda þá? Annars fín pæling.

Anar:
  • Fæðing hér: 6/8/05 12:47
  • Síðast á ferli: 8/5/06 11:05
  • Innlegg: 0