~Skilaboðin gera ekki boð á undan sér~
Nú er hann fallinn frá ljúfurinn. Hann sem sannarlega tálgaði og snikkaði. Hann var þekktur fyrir margt en flest var hans einka. Einkamál eru oft viðkvæm, sum eru þrútin og önnur hafa roða. Ég á ekki roð í suma sem ég hitti á. Meira að segja suma sem ég hitti ekki. Sumir hafa horn í síðu mér, ég veit ekki hvort það er mér að kenna. Mér var kennt að vera vænn við náungann. Ég lærði að nota náungann. Náunginn er stundum vinur minn og stundum forðast hann mig. Ég forðast oft tilfinningar og fel mig. Auðvelt að fela sig í eldhúsinu hans afa. En nú er hann fallinn frá. Hann afi minn er dáinn.
~Vonin lifir~
Ég færi honum afa þínum kveðju mína. Menn sem eru innblástur að áhugaverðum skrifum og bera virðingu fyrir öðrum, þeir eru sjálfir bæði áhugaverðir og virðingarverðir einstaklingar.