Baggalútur sendir landsmönnum öllum til sjávar og til sveita hugheilar jólakveðjur. Ekki er sérstök ástæða til að þakka árið sem er að líða en við gerum það nú samt – taki það til sín sem eiga.
Við minnum loks á tilskipun ríkisstjórnarinnar um aðhald yfir hátíðarnar:
1. Ein græn baun á mann.
2. Einn pakki á heimili.
3. Ein baðferð á fjölskyldu.
4. Einn flugeldur, meðalstór, á bæjarfélag.
5. Rafmagn verður tekið af á miðnætti, öll kvöld.
6. Stranglega bannað er að ónáða þingmenn um jól og áramót.
7. Stranglega bannað er að blogga um ástandið um jól og áramót.
8. Stranglega bannað er að koma fram með nýjar upplýsingar um bankahrunið um jól og áramót.
9. Útgöngubann tekur gildi við áramót.
Greiðendur fasteignagjalda!
Munið að þótt þið eigið í raun minna en ekkert í húsunum ykkar og bankinn gæti hirt þau af ykkur hvenær sem er, þá verðið þið samt sem áður að borga fasteignagjöldin. Svona erum við ógeðslega sniðug!
Sveitarfélögin
Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.
Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:
Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.
Góðar stundir.
Það er með feikimiklu stolti sem við tilkynnum að Baggalútur er í hópi Framúrskarandi fyrirtækja á Íslandi, annað árið í röð. Með því erum við ekki endilega að gera lítið úr þeim 98% fyrirtækja á Íslandi sem eru það EKKI, og eru þar af leiðandi í tómu rugli, rekstrarlega — en samt — við erum augljóslega betri en eiginlega allir.
Við þökkum árangurinn fyrst og fremst miklum árangri á menningar– og upplifunarsviði, en aukin áhætta sem fyrirtækið tók á köntrí– og aðventumarkaði á sínum tíma, þvert á spár sérfræðinga, hefur skilað sér í auknu eiginfjárhlutfalli og traustum rekstri. Þá var tekin umdeild ákvörðun innan stjórnar seint á síðasta áratug um að hætta alfarið rekstri kaffivélar, sem hefur skilað sér margfalt til baka.
Hið fornfræga myndmerki (e. lógó) Baggalúts hefur verið uppfært. Er það gert til að mæta betur kröfum samtímans um skjámiðlun, skölun, formlegt hagræði og breytta merkjaskynjun nútíma skjáneytenda, eins og segir í fréttatilkynningu.
Merki Baggalúts var upprunalega hannað af vestgotnesku listakonunni Gertrude Zeta–Zebra og standa angar þess fyrir gildi Baggalúts; traustgefni, samhygli, þrautsýni, metnúð og frumkvæðni. Þá stendur hringurinn fyrir kvenlægni og miðdepillinn fyrir mangó. Undirstrikið er svo villa í teikniforritinu Paint.
Eftir talsverða yfirlegu og hreinteikningu þar sem öll form, litir og útlínur myndmerkisins voru tekin til gagngerrar endurskoðunar, með tilliti til fagurfræðilegrar og tæknilegrar nálgunar, var ákveðið að færa merkið upp um þrjá svokallaða „pixla“ — til reynslu.
Baggalútur sendir frá sér glænýtt aðventulag sem ber heitið „Afsakið þetta smáræði.” Þar bregður ljóðmælandi sér í hlutverk hins hógværa gestgjafa, sem afsakar lítilræðið sem er á boðstólnum. Lagið er áminning um að forðast asann og stressið í desember og setjast aðeins niður og slaka á. En um leið að fara nú ekki of geyst í áti, útbelgingi og ítroðningi.
Lag og texti er eftir Braga Valdimar Skúlason en ótal valinkunnir veislugestir komu að hljóð– og leikmynd lagsins. Guðm. Kristinn Jónsson stýrði upptökum í félagi við Sigurð Guðmundsson og Ágúst Bent leikstýrði krásum hlöðnu myndbandi, sem tekið var upp í hinum fornfræga skíðaskála í Hveradölum.
Til láns
Gömul pláneta. Hentar vel fyrir mjög þróaðar lífverur. Þarfnast smá lagfæringa eftir fyrri íbúa. Laus eftir um 500 ár.
Guð.
Í tilefni einmuna veðurblíðu sendir hljómsveitin Baggalútur frá sér nýtt lag, sem ber heitið Appelsínugul viðvörun.
Lagið er bæði uppblásið og háfleygt og er því tilvalin 17. júní blaðra til að sleppa í loftið á sjálfum þjóðhátíðardegi Íslendinga. Til lukku með lýðveldið.
Lagið er áhlýðanlegt á tónsprænunni Spotify. Því má dreifa sem víðast.
Allsherjar endurmörkun og ímyndarsköpun tónlistarmannsins Megasar er nú á lokametrunum. Að sögn yfirstílista verkefnisins hefur Megas verið endurskoðaður frá grunni, hann straumlínulagaður og útlit hans fært til nútímahorfs — án þess þó að hreyfa um of við sérkennum hans og alþýðlegu yfirbragði.
Samhliða þessu hafa textar Megasar verið einfaldaðir til muna til að ná til breiðari markhóps, auk þess sem þeir hafa verið leitarvélabestaðir og þýddir yfir á bæði hollensku og finnsku til að ná til stærra markaðssvæðis.
„Breytingin er ótrúleg. Hann hefur fengið alveg nýja litapalettu, nýtt og ferskt lógó, auk þess sem söngkonan Birgitta Haukdal mun ljá honum rödd sína. Sem er spennandi nýjung.“
Þá verða ný gildi Megasar kynnt, en þau eru ÁKEFÐ, EINURÐ og RÁÐDEILD.
Karlmaður á besta aldri, Nói Albínusarson, tók kassabíl bróðursonar síns traustataki snemma í morgun og ók af stað í honum, án þess að biðja um leyfi.
Því miður kunni Nói ekki á stjórntæki bílsins og mölbraut því sérsmíðaðan gírkassa bílsins, sem hafði einmitt unnið Ofvitann, nýsköpunarverðlaun ofurgáfaðra leikskólabarna.
Nói komst við illan leik úr bílnum, sem gereyðilagðist. Hann var þó hinn hressasti og vildi ólmur sýna blaðamanni hvernig hann sýður egg.
ÞÚ TRÚIR ALDREI HVAÐ GERÐIST NÆST!
Búraútsala
Eigum fyrirliggjandi mikið af búrum í öllum stærðum og gerðum. Einnig byggjar á sanngjörnu verði. Gæludýraverslun Bárðar.
Fyrirtæki íslensku jólasveinanna fékk í dag jafnlaunavottun, en félagið hefur á undanförnum árum tekið með skipulögðum hætti á kynbundnum launamun innan fyrirtækisins og komið á metnaðarfullri jafnréttisstefnu.
„Við erum mjög ánægðir, eða alltsvo ánægð með þetta. Það eru að vísu mestmegnis karlmenn, sem starfa hjá okkur, eða eingöngu eiginlega, sem stendur. En það breytir því ekki að þetta er mikill heiður fyrir okkur… öll,“ segir Kertasníkir Leppalúðason, framkvæmdastjóri mannauðs– og jafréttissviðs Jólasveinanna.
Hann segist jafnframt vonast til að fleiri konur (og raunar fólk af öllum mögulegum kynjum) bætist í þessa rótgrónu — og um margt íhaldssömu stétt — á næstu áratugum eða öldum. Hann tekur þó fram að öllu slík aðlögun taki tíma og þurfi auðvitað að ígrunda vel. Hann áætlar að í dag séu um 300 sveinar í starfsnámi hjá félaginu, „allt jú, mögulega karlmenn“.
Kristín Framnes hefur tryggt sér fyrsta íslenska eintakið af svonefndum „snjallkalli“ af gerðinni Man–o–matic 3030b.
Er þetta þáttur í alhliða snjallvæðingu heimilisins, en Kristín hefur þegar fest kaup á snjallperum, snjalleldhúsi, snjallúri, snjallsjónvarpi, snjallbíl, snjallsímstöð, snjallþvottavél, snjallrúmi, snjalltrampólíni og snjallhamstri.
Snjallkallinn hlýðir öllum fyrirmælum fljótt og vel, heldur uppi lágmarkssamræðum og er með öllu áhugalaus um knattleiki. Hann talar lýtalausa íslensku og kann skil á öllum helstu heimilisstörfum. Þá kemur hann með sérstöku unaðsprógrammi, sem þó er enn í Beta–prófunum.
Fyrrum eiginmaður Kristínar fæst gefins, gegn því að vera sóttur.
Svo virðist sem Bára Halldórsdóttir, hljóðmeistari, og hugsanlegur vitorðsmaður hennar hafi náðst á mynd í öryggismyndavélakerfi Klaustur bars mánudaginn 19. nóvember. Er talið að þau hafi verið að koma fyrir hlerunarbúnaði og gera svokallað „sándtest,“ sem mun vera forsenda þess að gæði hljóðupptaka séu tryggð. Þau hafi svo kvöldið eftir beitt sérþekkingu sinni og háþróaðri upptökutækni til að taka upp spjall grunlausra gesta.
Á myndinni sjást Bára og meintur vitorðsmaður hennar taka ljósmyndir til að undirbúa aðgerðir kvöldið eftir. Sérstaka athygli vekur að þau eru í afar vönduðum dulargervum.
Elísabet Alexandra María Georgsdóttir, fyrrum drottning, hefur verið ráðin yfirflugfreyja hjá íslenska flugfélaginu WOWi.
Elísabet, eða Beta eins og hún er jafnan kölluð, er þekkt fyrir ríka þjónustulund, brennandi áhuga á ferðalögum og yfirburða kímnigáfu og því þótti hún smellpassa í hlutverkið.
Hún hefur ekki áhyggjur af því að takast á við nýtt hlutverk, komin á tíræðisaldurinn. „Nei, veistu, það er öllum hollt að skipta um starfsvettvang öðru hverju. Annars bara staðnar maður. Sjálf var ég svona að detta í netta kulnun.“
„Ég er líka pínu stressuð útaf þessu Brexit–kjaftæði öllu og vildi bara fá mér tryggari vinnu,“ sagði Elísabet að lokum áður en hún renndi sér fótskriðu eftir endilangri vélinni.
Nú stendur yfir stærsta sjávarútvegssýning Evrópu í Hannover í Þýskalandi þar sem hin ýmsu fyrirtæki kynna starfsemi sína á öllum …
Skelfileg og dularfull plága herjar nú á íslenska síldarstofninn og drepur þessa fallegu og gáfuðu skepnu í tugþúsundavís. Er jafnvel talið …
Ein þekktasta grúppía landsins, Lafði Magðalena, ætlar sér að 'fara á' bandarísku poppfrauðsveitina Eagles. Hafa margir beðið spenntir eftir ákvörðun Magðalenu, …
Rafmagn er komið á að nýju í Mosfellsbæ, en en tilkynnt var um rafmagnsleysi þar fyrr í kvöld. Rafmagnsleysið uppgötvaðist …
Hjónin Ingeborg og Bergur Berg á Húsavík fengu, að því er virðist, óvænta gesti í nótt. Þegar þeim var litið …
Starfsmenn Húsdýragarðsins hafa tekið eftir því að gölturinn Heiðar, sem er fjögurra ára og af Prinzenberg-kyni, hefur gífurleg „rómantísk“ áhrif …
Pála Sverrisdóttir, húsfreyja hefur verið úrskurðuð hæf til að stýra rannsókn á hinu svokallaða Baugsmáli - ein Íslendinga. Pála mun, eftir …
Hinn kunni lærimeistari og epagógíski ráðgjafi, Yoda Alexander Sveinbjörnsson, hefur verið ráðinn sérstakur ráðgjafi sérstaks saksóknara sem rannsakar sérstaklega sérstök …
Náðst hefur samkomulag við íslensk eldfjöll að þau muni halda sig til hlés meðan þjóðin nær að melta skýrslu rannsóknarnefndar …