Ef ég fæ ekki erkilaumupúkatign fyrir þetta, þá veit ég ekki hvað...
Kæru vinir. Þessi dagur, 13. desember 2006, er merkisdagur. Loksins munu tár mín, sviti og blóð bera ávöxt. Ef tilraun þessi heppnast, þá skapast laumupúkaþráður svo svakalegur, að Leoncie sjálf fellur á kné og tilbiður mig sem gullkálf! Já, þið lásuð rétt, sem gullkálf!
Ef þetta hefur áður verið gert, þá var gerandi sá að svindla, því að ég var fyrstur. Skál!
Goggurinn, hinn 13. desember 2006.
Skál kæri Goggur, framtak þetta er virðingarvert og vona ég, Texi Everto, að þráður þessi verði ekki of laumulegur fyrir helztu laumupúka Gestapó.
Stórglæsilegur þráður - til lukku, þú sannar enn og aftur að þú ert erkilaumupúki! [Ljómar upp]
Hvernig stendur á því að vjer uppgötvuðum þetta ekki 13. desember ? [Fær efasemdir um eigin laumupúkunarfærni]. Það verður þó að viðurkennast að þetta er snilldarleg laumupúkun - skál ! [Sýpur á fagurbláum laumupúkadrykk]
Annars eigið þjer enn eftir að finna laumulegasta laumupúkaþráðinn á Gestapó [Ljómar upp og heldur á vit ljósaskiptanna].
Ég var að hugsa um að kvitta á öllum þráðunum í kvöld. Nú er ég búin að gleyma hvar ég er búin að kvitta og hvar ekki.
[Dæsir mæðulega en horfir ekki út um gluggann]
Búin að koma laumupúkabókhaldinu í lag og kvitta nú af öryggi.
[Andvarpar af léttir]
Ég líka. [Ljómar upp] Bókhaldið telur nú 40 þræði misvirka og nokkra óskilgreinda til viðbótar.
Til lukku með daginn litli græni laumupúki. [Gefur Goggnum forláta úr sem er rétt tvisvar á sólarhring]
Það er spurning hvort ekki væri tilvalið að stofna klámvísulaumupúkaþráð sem Skabbi finnur ekki.
[Flissar] Það er spurning, en þú verður að tryggja að einhver annar en ég finni hann, ég er voðalega slök í klámvísugerð.
"Það er vont bara fyrst, en síðan það versnar, uns verður það óbærilegt..."
Enginn er verri þó hann sé perri, ef hann er verri verður það greinilega fljótt óbærilegt.
Erum það bara vjer eða er orðið óeðlilega langt síðan hjer hefur verið laumupúkast ?
Ég giska á að mánuður sé óeðlilega langt, en allt innan tveggja vikna sé eðlilega langt.
[Stingur fingrunum í rafmagnsdós]
Éééééééééggggg eeerrrrrrrr íííííííííí góóóóóóððððuuuuuuuuuuuu ssssstuuuuuuuðððððððiiiiiiiiiiiiiii.
Ahh. Þar var drukkinn bjór. Á ennþá forláta krús úr þessu heljarinnar drullusvaði...
Jæja. Laumupúkagrenið mitt er greinilega enn til. Best að leita að fleirum.
Og hvaða rit var það, mætti ég spyrja? Ef það er ekki hér þá var það aldrei til. [Dáleiðir]
Ég er ekki með tímahliðrunartækið núna, athuga þetta þegar ég er í nánd við það.
[klórar sér í höfðinu og reynir að finna út hvernig standi á dagsetningarugli goggsins]
<Grætur hástöfum vegna þess að enginn mætti>
ASDAGJSSRFGHHHNDFGSFDFHDFGHSDFGJH
(Takk fyrir brandaralánið Regína!)
Í einhverjum Örlygsstaðabardaganum barðist þú með hástöfum minnir mig. Eða var það einhver annar?
Þetta er skemmtilegur laumupúkaþráður sem alllangt er síðan vjer höfum heimsótt. Skál ! [Sýpur á fagurbláum drykk]