Þið eruð nú meiri...
Vitiði það að hugi.is er svo miklu betra heldur en þetta, no offence sko en þar er hægt að gera svo mikið meira og myndir og miiiikið fleiri notendur og þar er líklegast til séráhugamál fyrir hvert og eitt ykkar, mæli með www.hugi.is ;) annars er ægilega gaman af fréttunum á baggalút :D
Mér fannst þessi Bebbz alltaf óttalega óhugnaleg.
Nú veit ég afhverju. Þetta er óskrifandi gelgja. Maður skrifar ekki "í order" heldur "í orden". Þetta er dönskusletta og ætli fólk að stunda þann ósið að sletta er það beðið um að sletta rétt!
,,séráhugamál fyrir hvert og eitt ykkar"
Okkar áhugamál er vinskapur, annað fellur svo að sjálfu sér þar undir.
Ekki koma með svona ,,lolevel" mál á okkar borð takk fyrir.
hey vá... ég ætla að kíkja á higu.is, ætli þar séu menn að kveðast á... ætli þar séu áhugamenn um kóbalt... drekka menn Ákavíti þar?
Já, ef ég kynni ekki að skrifa, ef ég væri eilítið fátækari andlega, ef ég hefði áhuga á að standa í ritþvargi við fólk sem heldur að hugtök á borð við „mammaín” séu gild rök í umræðum, ef ég væri gersneydd kímnigáfu...
Þá væri ég eflaust á Hxxx.is akkúrat núna.
Bebbz. Þetta er alter egó sem vert er að varast. Ekkert í kollinum á þessu.
[Snarar Bebbz og bindir fasta við h***.is staurinn] Ekki reyna að sleppa, íííhhhhaaaaaa.
AAA Hvur djöfullinn er þetta? Tvípunktur og stórt d saman oj mér finnst ég vera svo skítug núna
Bebbz er ekkert fífl, bara á villigötum. Kolvilligötum...
En vinsamlega eyddu þessu félagsriti því ég tek það svo inn á mig.
Sæl Bebbz
Hérna inni er ekki talað um h..a.is og alls ekki notað tvípunktur og svo stórt d eða svigi lokast.
Þá færðu svona svör svo kannski er h..i.is bara betri síða fyrir þig.
Hehehe vá hvað þetta var gaman, varð bara að skrifa þetta til að sjá viðbrögðin við þessu. Allavega fyrirgefið þetta rugl, mér finnst alveg jafn gaman á báðum síðunum.
Allveg jafn gaman? Þetta er sko ekki einu sinni geymt í mínum bókum..hvað þá gleymt. [Fussar og urrar smá því það er svo gaman að urra á nýliða]
Ég hef tekið eftir því, Litla Laufblað, hvað þú hefur urrað mikið undanfarið. Áður en ég kynntist þér vissi ég ekki einu sinni að laufblöð gætu þetta. En hvað veldur? [Rekur míkrafón upp við andlitið á Laufu (má ég kalla þig það?)]
Það sem hann sagði [Bendir upp] og nei þú mátt ekki kalla mig Laufu [Urrar á Don De Vito]